- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Vegna fréttar Ríkisútvarpsins um fjársvik á hjúkrunarheimilinu Grenilundi, vilja forsvarsmenn þess koma eftirfarandi á framfæri;
Þegar málið kom upp lét viðkomandi starfsmaður af störfum þegar í stað. Af hálfu heimilisins var málið strax tekið föstum tökum í samráði við lögmann sveitarfélagsins. Viðkomandi heimilismaður og aðstandendur hans voru jafnframt upplýstir um atvik málsins.
Einnig voru verkferlar og öryggisreglur á heimilinu yfirfarnar til að fyrirbyggja að slíkt atvik gæti komið upp aftur.
Okkur þykir mjög miður að þetta hafi gerst og er aðilum máls vottuð hluttekning. Minnt er á að sýna virðingu og umhyggju í umræðu og umfjöllun.
Sveitarfélagið mun ekki tjá sig frekar um málið.
Fyrir hönd hjúkrunarheimilisins Grenilundar,
Þröstur Friðfinnsson, sveitarstjóri
Fjóla V. Stefánsdóttir, forstöðumaður Grenilundar