Teikninga- og skipulagssjá

Með því að smella á hlekkinn hér að neðan er hægt að komast á teikninga- og skipulagssjá embættis Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar. 

Þegar inn á kortið er komið og skoða á teikningar húsa, þá er hakað við "teikningar af byggingum" á valmyndinni hægra megin.  Birtast þá punktar við þær byggingar sem skannaðar teikningar eru til fyrir.  Þysjað er inn á þá byggingu sem óskað er og smellt á punktinn, þá opnast gluggi þar sem hægt er að velja teikningar til skoðunar.

Ef skoða á skipulag, t.d. deiliskipulag, er hakað við "skipulag" í rammanum hægramegin.  Síðan er hægt að smella á hvert skipulag fyrir sig á kortinu og skoða uppdrætti og greinargerðir.

Teikninga- og skipulagssjá.