Vatnsskortur - sundlaugin lokuð í dag

Rennslið þyrfti að vera meira!
Rennslið þyrfti að vera meira!

Óvenjulegur vatnsskortur herjar nú á okkur og rennsli í vatnsbólum mikið minna en áður hefur verið á þessum árstíma. Skýringar liggja ekki ljósar fyrir, en grunur er helst um að jörð hafi frosið langt niður í vetur þar sem lengi var alautt. Síðan myndi hinn mikli snjór sem kom í fjöll í mars og apríl einangrun sem tefji fyrir því að jörð þiðni. Ef þessi tilgáta er rétt getur tekið einhvern tíma að eðlilegt flæði komi á ný, það veltur á hitastigi næstu daga og vikur.

Notkun vatns er mest þriðjudaga og miðvikudaga, því er staðan allra verst um miðja vikuna, en nægt vatn um helgar. Af þessum sökum er sundlaugin lokuð í dag, 3. júní, verður staðan endurmetin dag frá degi.

Íbúar eru beðnir að láta ekki vatn renna að óþörfu og vökva lóðir ekki virku dagana meðan þetta ástand varir.

Sveitarstjóri