Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra auglýsir eftir umsóknum fyrir árið 2017

Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra auglýsir eftir umsóknum fyrir árið 2017

Hlutverk sjóðsins er að styrkja menningar-, atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni, auk þess veitir sjóðurinn stofn- og rekstrarstyrki til menningarmála

Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður og miðast styrkveitingar við árið 2017.

Frekari upplýsingar um umsóknarferlið, úthlutunarreglur 2017, áherslur sjóðsins og Sóknaráætlun Norðurlands eystra er að finna á heimasíðu Eyþings www.eything.is og atvinnuþróunarfélaganna www.afe.is og www.atthing.is.

Umsóknum skal skilað rafrænt til uppbyggingarsjóðs á netfangið uppbygging@eything.is á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu Eyþings og atvinnurþóunarfélaganna.

Umsóknarfrestur er til og með  15. febrúar.  Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér verklagsreglur uppbyggingarsjóðs á heimasíðu Eyþings og atvinnuþróunarfélaganna. 

Starfsmenn sjóðsins verða með viðveru og vinnustofur á starfssvæðinu í tengslum við úthlutunina þar sem veitt verður ráðgjöf við gerð umsókna.

Viðvera starfsmanna uppbyggingarsjóðs verður á eftirfarandi stöðum:

  • Akureyri 16. jan. og 10. feb.  kl. 9-15       Skrifstofu Eyþings
  • Dalvíkurbyggð   23. jan. kl 10-12               Menningarhúsinu Bergi
  • Ólafsfjörður 23. jan.  kl. 13-14                    Bókasafni Fjallabyggðar Ólafsfirði
  • Siglufjörður 23. jan. kl. 15.30-16                Ráðhúsinu Siglufirði
  • Mývatnssveit 24. jan.  kl. 10-12                 Skrifstofu Skútustaðahrepps
  • Laugum 24. jan. kl. 14-15.30                       Seiglu – miðstöð sköpunar
  • Húsavík 25. jan. kl. 9-11                                               Skrifstofu Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga
  • Kópasker 25. jan. kl. 13 -14                         Skrifstofu Norðurþings
  • Raufarhöfn 25. jan. kl. 15-16                      Skrifstofu Norðurþings
  • Þórshöfn 26. jan. kl. 9-11                             Skrifstofu Langanesbygðar
  • Grímsey 31. jan. kl. 14-16                            Félagsheimilinu Múla
  • Hrísey   1. feb. kl. 10-11                                Húsi Hákarla Jörundar
  • Grenivík 1. feb kl. 15-16                                Skrifstofu Grýtubakkahrepps

Vinnustofur í umsóknargerð verða á eftirtöldum stöðum:

  • Laugum,  Seiglu – miðstöð sköpunar   24. janúar  kl. 16-19
  • Húsavík, skrifstofu Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga 24. janúar kl. 20- 23
  • Grunnskólanum Raufarhöfn,  25. jan. kl. 17-20
  • Akureyri, skrifstofu Eyþings 7. febrúar kl. 9-12
  • Akureyri, skrifstofu Eyþings 8. febrúar og 16-19

Á vinnustofum gefst umsækjendum tækifæri á að koma með umsóknir í vinnslu, fá aðstoð og leiðbeiningar.  Nauðsynlegt er að skrá sig og vinnustofur og panta viðtalstíma á netfanginu menning@eything.is.

Frekari upplýsingar um styrki veita,  á sviði menningar  Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir netfang menning@eything.is eða í síma 464 9935. Upplýsingar um styrki til atvinnuþróunar og nýsköpunar veita  Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga, Ari Páll Pálsson á netfanginu aripall@atthing.is sími 464 0416  og Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar, Baldvin Valdemarsson á netfanginu baldvin@afe.is  eða í síma 460 5701.