Unnið að uppbyggingu í ferðaþjónustu

Kaldbakur streymir orku til Grenvíkinga og gesta þeirra
Kaldbakur streymir orku til Grenvíkinga og gesta þeirra

Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps hefur á undanförnum misserum unnið að því að myndarleg uppbygging í ferðaþjónustu verði í hreppnum.  M.a. var síðastliðið vor auglýst eftir samstarfsaðilum og þó ekki kæmi niðurstaða eftir þá auglýsingu, hafa mál nú þróast nokkuð áfram.

Grýtubakkahreppur er nú í viðræðum við öflugan erlendan aðila, NIHI Hotels, ásamt Viking Heliskiing ehf., um uppbyggingu hér við Grenivík.  Mun ráðast á næstu mánuðum hvort af uppbyggingunni verður.  Okkar von er að þetta geti orðið mikil lyftistöng fyrir svæðið, muni auka hér fjölbreytni í þjónustu og styðja við aðra starfsemi sem fyrir er.

Hér á eftir er yfirlýsing frá okkar samstarfsaðila, Nihi Hotels:

„Nihi Hotels and its partner Viking Heliskiing Iceland are in an exclusive conversation with the town of Grenivik to develop a signature Nihi experience on the Nordic island. The all-adventure resort will capture culturally immersive and outdoor exploration consistent with Nihi’s doctrine, “the edge of wildness.” The modern chalet environment will be the luxury base for off-site excursions including views of the dramatic Northern Lights, whale watching, horseback riding, salmon fishing, natural spring and geothermal spa activities, all-terrain buggy tours, and of course traversing the vast landscape of fresh powder with guided heliskiing, and much more.  Creating a legacy of goodwill, Nihi Hotels fosters community-based projects through cause-related organizations, and encourages guests to volunteer for a glimpse into local life.  Similarly, the Grenivik location will benefit from Nihi’s commitment to philanthropic engagement.“