Tónlistarskóli Eyjafjarðar - Mið- og framhaldstónleikar í Laugaborg 22. mars

Mið- og framhaldstónleikar TE

Heil og sæl, nemendur, foreldrar og kennarar Tónlistarskóla Eyjafjarðar.

Kæru sveitungar.

Á morgun þriðjudaginn 22. mars kl.20.00 verða haldnir árlegir Mið- og framhaldstónleikar Tónlistarskóla Eyjafjarðar í Laugarborg.
Eins og nafnið bendir til koma fram flestir lengra komnir nemendur skólans.
Á tónleikunum verður flutt fjölbreytt efnisskrá höfunda allt frá Haydn, Mozart og Beethoven með viðkomu hjá Sigfúsi Halldórssyni og Adele svo einhverjir séu nefndir.

Við heyrum m.a. píanóleik, strengjaleik, brass og tréblástur sem og klassískan og rythmískan söng.

Allir hjartanlega velkomnir og við hlökkum til að sjá ykkur sem flest og óskum flytjendum góðs gengis. Toj, Toj!

Góðar kveðjur úr Tónlistarskóla Eyjafjarðar