Tónlistarskóli Eyjafjarðar - innritun stendur nú yfir

Innritun fyrir næsta skólaár stendur nú yfir í TE (Tónlistarskóla Eyjafjarðar) og fer hún fram rafrænt. Umsókarfrestur er til 1.júní en gott að skrá nemendur sem allra, allra fyrst.
Tengill á síðuna er: http://tonlist.krummi.is/?page_id=835


Í Tónlistarskóla Eyjafjarðar er hægt að læra á næstum öll hljóðfæri; píanó, orgel, harmoniku, gítar og ukulele, bassa, selló, kontrabassa, fiðlu og lágfiðlu, þverflautu og blokkflautu, saxafón, klarinett, trompet, og básúnu, slagverk/trommur og söng. Kenn er bæði eftir klassískum og rythmískum námskrám og áhugasviði nemenda. Einnig er boðið upp á kennslu eftir Suzuki aðferð á fiðlu og selló.
Þriðjudaginn 18.maí, fóru kennarar úr Tónlistarskóla Eyjafjarðar í alla samstarfsgrunnskólana með hljóðfærakynningar; Hrafnagilsskóla, Þelamerkurskóla, Valsárskóla og Grenivíkurskóla. Kynnt voru hin ýmsu hljóðfæri sem vonandi kveikti forvitni nemenda.