Þönglabakkamessa 2018

Séð yfir Þönglabakka í Þorgeirsfirði
Séð yfir Þönglabakka í Þorgeirsfirði

Messað verður á Þönglabakka í Þorgeirsfirði sunnudaginn 29. júli kl. 14.00.  Sr. Kristján Valur Ingólfsson og sr. Bolli Pétur Bollason þjóna.

Húni siglir og hægt að ganga frá Hvalvatnsfirði yfir í Þorgeirsfjörð. Varðandi fargjald í skipið Húna þá er það kr. 2500,- eitt verð og skiptir ekki máli hvort farið sé frá Akureyri eða Grenivik og breytir engu hvort um aðra leið sé að ræða eða báðar.

Farið verður frá Akureyri kl. 8.00 og Grenivík kl. 10.00. Skipið tekur hámark 70 manns og fyrstir koma, fyrstir fá. Boðið verður upp á kaffi, te og pönnsur um borð. Gott að bóka í tíma á póstfangið bolli.petur.bollason@gmail.com.

Síðan verður hægt að aka að Tindriðastöðum í Hvalvatnsfirði sem tekur c.a. klst. og ganga þaðan yfir hálsinn sem tekur líka c.a. klst. og fólk finnur út úr því sjálft hvernig það kemst þangað. Svo er það bara veðrið, er það ekki alltaf gott?  Verið velkomin!

Sóknarprestur