Tækniþróunarsjóður býður upp á ráðgjafatíma dagana 3.–5. september

Tækniþróunarsjóður býður upp á ráðgjafatíma dagana 3.–5. september, þar sem sérfræðingur sjóðsins verður á svæðinu til viðtals og ráðgjafar. Svæðið sem um ræðir nær yfir starfssvæði Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) – frá Siglufirði að Bakkafirði.

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Atla Arnarson (📧 atli.arnarson@rannis.is) og bóka tíma í síðasta lagi mánudaginn 1. september.

Við teljum þetta vera góða og gagnlega þjónustu fyrir frumkvöðla, fyrirtæki og aðra sem vinna að nýsköpun á svæðinu og vonumst til að sem flestir nýti sér tækifærið.