Sveitarstjórnarkosningar - kjörskrá lögð fram

Kjörskrá Grýtubakkahrepps vegna sveitarstjórnarkosninganna 16. maí 2026 hefur nú verið yfirfarin og lögð fram.  Hún er til sýnis á skrifstofu hreppsins fram að kosningum.

Engir listar bárust kjörstjórn, kosning í hreppnum verður því óhlutbundin svo sem verið hefur.

Utankjörfundaratkvæðageiðsla verður á skrifstofu hreppsins að Túngötu 3 á Grenivík. Áformað að hún hefjist 4. maí og verði á opnunartíma skrifstofunnar, mánudag - fimmtudags kl. 10:00 til 15:00 og lýkur henni 13. maí.  Væntanlega hefst utankjörfundaratkvæðagreiðsla eitthvað fyrr á skrifstofu sýslumanns á Akureyri.

Kjörfundur verður auglýstur síðar.