Sveitarstjórnarkosningar í Grýtubakkahreppi verða laugardaginn 14. maí 2022

Kosið verður í Grenivíkurskóla og hefst kjörfundur kl. 10.00

Lok kjörfundar fer eftir 66. grein laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998:

“Atkvæðagreiðslu má ekki slíta fyrr en átta klukkustundir eru liðnar frá því að kjörfundur hófst og ekki fyrr en hálf klukkustund er liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram. Atkvæðagreiðslu má þó slíta er allir sem á kjörskrá standa hafa greitt atkvæði og eftir fimm klukkustundir ef öll kjörstjórnin og umboðsmenn eru sammála um það, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram.
Kjörfundi skal slíta eigi síðar en kl. 22 á kjördag. Þeir kjósendur, sem hafa gefið sig fram fyrir þann tíma, eiga þó rétt á að greiða atkvæði.”

Kjörstjórn Grýtubakkahrepps