- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Auglýst er eftir listaframboðum vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí n.k., í samræmi við kosningalög og reglur landskjörstjórnar.
Ef einhverjir óska eftir að leggja fram framboðslista, skal þeim skilað til kjörstjórnar á skrifstofu hreppsins í síðasta lagi kl. 12:00 þann 10. apríl 2026. Upplýsingar um form, meðmælendur og annað er máli skiptir er að finna á síðunni www.kosningar.is .
Berist engir framboðslistar fyrir tilskilinn frest, verður kosning óhlutbundin svo sem verið hefur, einstaklingar þurfa ekki að bjóða sig fram sérstaklega, en íbúasíða hreppsins er öllum opin sem vilja.
Kjörstjórn Grýtubakkahrepps.