Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar

Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar afgreiddi á fundi sínum 7. maí s.l. til kynningar drög skipulagstillögu og umhverfisskýrslu vegna breytinga á svæðisskipulagi.  Tillagan verður síðan send sveitarstjórnum til staðfestingar að lokinni kynningu sem stendur til loka júní.

Opinn kynningarfundur um tillöguna verður haldinn í Hlíðarbæ 6. júní, sjá auglýsingu sem er hér með fréttinni.

Athugasemdum má koma á framfæri með tölvupósti á afe@afe.is, eða senda í pósti til Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, v. svæðisskipulags, Hafnarstræti 91, 600 Akureyri fyrir lok júní 2019.