Sleppingar búfjár

Hvalvatnsfjörður
Hvalvatnsfjörður

Sveitarstjórn staðfesti á fundi sínum í gær, tillögur landbúnaðar- og umhverfisnefndar um sleppingar búfjár í sumar.  Bókun sveitarstjórnar hljóðar svo:

Landbúnaðar- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að upprekstrardagur sé miðaður við 10. júní. Þá leggur nefndin einnig til að heimilt verði að sleppa fé í ógirt heimalönd og almenninga Grýtubakkahrepps 10. júní.

Bændur eru hvattir til að gæta hófs við upprekstur og sleppingar og láta vita sín á milli hvenær þeir hyggist fara með fé sitt, hvort heldur sem er til rekstrar eða keyrslu, svo ekki fari of margir á sama tíma.

Þá leggur nefndin til að leyfilegt verði að sleppa hrossum á afrétt frá og með 1. júlí og verða þau að vera komin af afrétt í síðasta lagi 31. ágúst.

Sveitarstjórn staðfestir tillögur nefndarinnar.

Bændur og landeigendur eru sérstaklega hvattir til að huga að girðingum og eftir fremsta megni að gera þær fjárheldar fyrir 10. júní, þannig að fé haldist þar sem því er ætlað að vera.  Einnig að viðhalda girðingum áfram eftir því sem þörf er á, þannig að þjóðvegurinn haldist fjárlaus í sumar.