Samkomubann og fleiri upplýsingar

Upplýsingasíðan er www.covid.is
Upplýsingasíðan er www.covid.is

Þá hefur verið sett bann á samkomur fjölmennari en 100 frá 16 mars til og með 13. apríl.  Jafnframt eru stjórnvöld og stofnanir að aflýsa eða fresta ýmsum viðburðum.  Þannig hefur fermingum verið frestað og helgihald í kirkjum verður ekki með hefðbundnu sniði næstu vikurnar.

Lagt er til að minni samkomur og fundir verði einnig takmarkaðir og fjarfundabúnaður nýttur þar sem það er hægt.

Háskólum og framhaldsskólum hefur verið lokað en grunnskólum og leikskólum er heimilt að starfa áfram með aðgerðum sem miða að því að tempra samgang milli nemendahópa.  Veiran hefur ekki lagst þungt á börn og vonum við að svo verði áfram.

Starfsdagur verður mánudaginn 16. mars bæði í Leikskólanum Krummafæti og Grenivíkurskóla.  Börnin verða því heima þann dag.  Stjórnendur og starfsmenn munu nota daginn til að setja upp nýja áætlun um starf skólanna og verða foreldrar upplýstir jafnskjótt og fært er, rétt að þeir fylgist vel með skilaboðum.

Íþróttamiðstöðin er enn opin, sundlaug og líkamsrækt.  Það gæti breyst á næstu dögum og eru íbúar beðnir að fylgjast með tilkynningum.

Heimsóknarbann er á Grenilundi. 

Skrifstofa sveitarfélagsins er opin áfram.  Það gæti þó breyst á næstu dögum einnig.

Viðbragðsáætlun sveitarfélagsins í heild verður birt á heimasíðu nú um helgina þegar lokayfirferð er lokið.  Áætlunin miðar að því að kortleggja viðbrögð og að halda úti starfsemi sveitarfélagsins eins og kostur er með lágmarksáhættu.

Rétt er að huga sérstaklega að öldruðum og þeim sem eru viðkvæmir fyrir.  Umgengni ætti að tempra, þannig er ekki sjálfgefið að börnin umgangist afa og ömmu með sama hætti og fyrr.  Hér verður hver að hugsa um sig og sína og nota skynsemi og meðalhóf.

Búið er að opna nýja upplýsingasíðu, www.covid.is.  Þar er að finna greinargóðar upplýsingar og leiðbeiningar, nýjustu fréttir og tölulegar upplýsingar.  Allir sem eru óvissir um sína stöðu ættu að skoða síðuna.

Þá er öllum velkomið að hafa samband við skrifstofu hreppsins, við reynum að afla upplýsinga og svara ef þau ligga ekki þegar fyrir.

Við munum reyna að setja inn upplýsingar eftir því sem fram vindur á heimasíðu og íbúasíðu, staðan breytist svo hratt að ekki er einfalt að fylgja öllu eftir.

Annars er rétt að halda ró sinni og reyna líka að láta lífið hafa sin vanagang eftir því sem kostur er.

Sveitarstjóri