- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Á dögunum tóku starfsmenn áhaldahúss við nýjum vinnubíl af gerðinni Polaris. Er það "buggybíll" sem er afar hentugur til ýmissa snúninga við dagleg störf. Bíllinn er með sætum fyrir 6 manns og með litlum palli sem hægt er að sturta. Hann er fjórhjóladrifinn og kemst því t.d. að vatnsbólum og með girðingum, auk þess að nýtast vel innan þorps sem utan, til að ferja fólk, áhöld og búnað.
Myndin er tekin þegar Elvar Rafnsson starfsmaður Storms ehf. afhenti Sigurði Baldri forstöðumanni véla og veitna bílinn.