Nýtt leiksvæði vígt við Grenivíkurskóla

Þorgeir Rúnar Finnsson skólastjóri flytur ávarp.
Þorgeir Rúnar Finnsson skólastjóri flytur ávarp.

Í sumar og og haust hefur verið unnið að endurnýjun leiksvæðis við Grenivíkurskóla.  Í leiðinni var vatnsinntak í skólahúsið endurnýjað og drenlagnir endurbættar.  Er það fyrirbyggjandi viðhald, enda húsið byggt um 1980.

Í dag var leiksvæðið formlega vígt og var mikil gleði í andlitum og almenn ánægja með framkvæmdina.  Svæðið er hið glæsilegasta með litlum íþróttavelli með körfuspjöldum, fjölbreyttum leiktækjum og opnu svæði þar sem koma má fyrir hjóla/brettarömpum síðar.  Hóll til að renna sér niður af var byggður upp efst á lóðinni, "Þorgeirshóll".  Þá verður komið fyrir skrautgróðri á lóðinni innan um og á milli leiksvæðanna, vonandi strax á næsta ári.

Þorgeir skólastjóri flutti stutta tölu og þrír af nemendum fjórða bekkjar fluttu þakkir og lýstu ánægju með svæðið.  Síðan klipptu börnin á borða og svæðið var formlega opnað.

Nokkrar myndir;