Ný sveitarstjórn tekin til starfa - Þröstur áfram sveitarstjóri

Nýkjörin sveitarstjórn ásamt sveitarstjóra
Nýkjörin sveitarstjórn ásamt sveitarstjóra

Í gær kom nýkjörin sveitarstjórn Grýtubakkahrepps saman til fyrsta fundar.  Á fundinum var Gísli Gunnar Oddgeirsson kjörinn oddviti og Þorgeir Rúnar Finnsson varaoddviti.  Þá var á fundinum staðfest ráðning sveitarstjóra, þar verður engin breyting heldur, Þröstur Friðfinnsson var ráðinn áfram, en hann kom til starfa sumarið 2014.

Sveitarstjórn fór yfir ýmis málefni á sínum fyrsta fundi og stóð umræða fram á kvöld.  Hugur var í hópnum og mikill vilji til að vinna sveitarfélaginu sem best og þróa samfélagið áfram.  Bjartsýni og góður andi einkenndi umræður og almenn trú á framtíð okkar góða samfélags.

Að loknum fundi var skellt í myndatöku á Gömlu bryggju.

Sveitarstjórn og sveitarstjóra er óskað til hamingu og velfarnaðar í sínum störfum.  Nánar má lesa um úrslit kosninganna hér.