Mathús Milli Fjöru & Fjalla

Einar, Halla og Ágúst, glaðbeitt fyrir utan væntanlegt Mathús.
Einar, Halla og Ágúst, glaðbeitt fyrir utan væntanlegt Mathús.

Eftir langan vetur án veitingahúss á Grenivík er nú að rofa til.  Fjölskyldufyrirtækið Milli Fjöru & Fjalla ætlar að opna Mathús í húsnæði fyrrum Kontorsins.

Eigendur fyrirtækisins, þau Halla Sif Guðmundsdóttir, Einar Rafn Stefánsson og Ágúst Logi Guðmundsson, eru full tilhlökkunar að segja frá því að fjölskyldufyrirtækið í Fagrabæ, Milli Fjöru & Fjalla, færir nú út kvíarnar og opnar nýtt veitingahús og vinnslurými á Grenivík;

Staðurinn hefur fengið nafn og á að heita Mathús Milli Fjöru & Fjalla.  Áætlað er að opna fyrir gestum og gangandi í júlí 2020, þannig að allir ættu að geta lagt leið sína til okkar í Mathúsið á Grenivík með sumrinu.

Milli Fjöru & Fjalla framleiðir vörur sem falla til í sauðfjárrækt og hefur haft það sem megin markmið allt frá fyrsta degi að neytandinn kunni að meta afurðirnar og þekki gæði þeirra og margbreytileika. Til viðbótar við okkar hefðbundnu framleiðslu þá mun Mathús Milli Fjöru & Fjalla í samstarfi við aðra, bæta fiski, grænmeti og fleiru við sitt vöruúrval.  Enda liggur það mjög vel við þar sem nafnið á fyrirtækinu inniheldur bæði fjöru og fjalla.

Mathúsið mun leggja ríka áherslu á að þjónusta breiðan hóp viðskiptavina og bjóða uppá allt það besta sem í hreppnum býr.  Þar verður veitingastaður, kaffihús, bar og kjötvinnsla rekin allan ársins hring.  Mathúsið verður einskonar miðstöð menningar og tónlistalífs í Grýtubakkahreppi sem er unnið í góðu og tryggu samstarfi við þau félög og fyrirtæki sem í hreppnum eru.

Samningar hafa tekist við Sænes sem er eigandi hússins.  Við óskum unga fólkinu til hamingju og góðs gengis, enda erum við þess fullviss að Mathúsið þeirra mun auðga okkar samfélag.