- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Grýtubakkahreppur auglýsir hér með til sölu íbúðina/parhúsið:
Höfðagata 2B, fnr. 2357562, 4ja herbergja, 107,9 fm. Íbúðin er í góðu ástandi, rúmgóð og skemmtileg til búsetu. Íbúðinni fylgir steyptur sólpallur og bílastæði með snjóbræðslu, einnig 22kw hleðslustöð fyrir rafbíla.
Byggingarár; 2015
Fasteignamat; kr. 44.950.000,-
Brunabótamat; kr. 60.750.000,-
Á slóðinni https://www.map.is/eyjafjordur/ er hægt að skoða aðaluppdrátt hússins, með því að haka við [teikningar af byggingum] og þysja inn á íbúðina. Ath. að hluta eru teikningar sameiginlegar með nr. 2A.
Íbúðin verður laus til afhendingar í október. Bjóðendum er bent á að kynna sér ástand íbúðarinnar vel áður en boðið er. Ekki verður tekið við tilboðum með fyrirvörum, öðrum en hefðbundnum fyrirvara um fjármögnun.
Áhugasamir hafi sambandi við sveitarstjóra sem gefur allar frekari upplýsingar.
Tilboð í íbúðina skulu berast á skrifstofu hreppsins eigi síðar en mánudaginn 5. október n.k. kl. 14:00, þar sem þau verða opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Tilboð skal gilda að lágmarki í 2 vikur.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Grenivík, 18. september 2026,
Sveitarstjóri
