Íbúð til sölu

Höfðagata 1A
Höfðagata 1A

Grýtubakkahreppur auglýsir hér með til sölu íbúðina/parhúsið:

Höfðagata 1A,  fnr. 2350505,  4ja herbergja, 104,8 fm.

Byggingarár;              2013

Fasteignamat;  kr.       24.500.000,-

Brunabótamat;  kr.     39.300.000,-

Á slóðinni https://www.map.is/eyjafjordur/ er hægt að skoða aðaluppdrátt hússins, með því að haka við [teikningar af byggingum] og þysja inn á íbúðina.

Íbúðin verður laus til afhendingar í september.  Bjóðendum er bent á að kynna sér ástand íbúðarinnar vel áður en boðið er.   Ekki verður tekið við tilboðum með fyrirvörum, öðrum en hefðbundnum fyrirvara um fjármögnun. 

Áhugasamir hafi sambandi við sveitarstjóra sem gefur allar frekari upplýsingar.

Tilboð í íbúðina skulu berast á skrifstofu hreppsins eigi síðar en 23. apríl n.k. kl. 15:00, þar sem þau verða opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Tilboð skal gilda að lágmarki í 2 vikur.

Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.

Grenivík, 7. apríl 2020,

Sveitarstjóri