Íbúð til sölu

Túngata 9a er 86,5 fm. íbúð í raðhúsi.
Túngata 9a er 86,5 fm. íbúð í raðhúsi.

Íbúð til sölu

Grýtubakkahreppur auglýsir hér með til sölu raðhúsíbúðina:

Túngötu 9A,  fnr. 2160976 03 0101,  3ja herbergja, 86,5 fm.

Byggingarár;                        1976

Fasteignamat;   kr.      16.150.000,-

Brunabótamat;  kr.     31.750.000,-

Á slóðinni https://www.map.is/eyjafjordur/ er hægt að skoða aðaluppdrátt hússins, með því að haka við [teikningar af byggingum] og þysja inn á íbúðina.

Íbúðin verður laus til afhendingar í júní.  Bjóðendum er bent á að íbúðin er farin heldur að eldast og því rétt að kynna sér ástand hennar sérlega vel áður en boðið er.  Ekki verður tekið við tilboðum með fyrirvörum, öðrum en hefðbundnum fyrirvara um fjármögnun. 

Áhugasamir hafi samband við sveitarstjóra sem gefur allar frekari upplýsingar.

Tilboð í íbúðina skulu berast á skrifstofu hreppsins eigi síðar en 8. maí n.k. kl. 15:00, þar sem þau verða opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Tilboð skal gilda að lágmarki í 2 vikur.

Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.

Grenivík, 22. apríl 2020,

Sveitarstjóri