Í aðdraganda kosninga

Horft heim
Horft heim

Sveitarstjórnarkosningar verða haldnar 16. maí nk. Kosningum fylgir jafnan ákveðin spenna og tilhlökkun, kannski á köflum örlítill tregi líka. Þær eru áminning um hve hratt tíminn flýgur en marka einnig nýtt upphaf, tíma til breytinga og eftir atvikum nýrrar sóknar samfélagsins.

Það kjörtímabil sem er að renna sitt skeið má kalla tíma uppbyggingar í hreppnum. Hvort heldur er í atvinnulífi eða við uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. Það er afar ánægjuleg þróun og magnað að finna kraft og bjartsýni á framtíðina eflast.

Hlutverk sveitarfélagsins er að byggja undir og styðja við þessa þróðun. Með gatnagerð og skipulagsvinnu og einnig með því að viðhalda og efla þjónustustig sem gerir samfélagið að eftirsóknarverðum búsetukosti. Að því hefur verið unnið og verður áfram.

Einnig hefur verið sinnt minna áberandi verkefnum, en ekki síður mikilvægum. Það er að viðhalda fasteignum og koma í veg fyrir skemmdir sem geta kostað margfalt meira eins og þekkt er. Endurnýjað hefur verið þak bæði á skóla og íþróttahúsi og í vor verður lokið við þriðja og síðasta áfanga glugga- og útihurðaskipta í grunnskólanum. Fleiri fasteignir hafa fengið viðhald en þetta er þáttur sem verður ekki ofmetinn að mikilvægi, en hefur á köflum verið vanræktur hjá sveitarfélögum þegar þrengir að rekstri.

Vegna seinkunar á því að Hótel Höfði klárist, hefur íbúaþróun ekki orðið eins og áætlað var, enn sem komið er. Þó tekjur sveitarfélagsins hafi haldið samkvæmt áætlun, er þó töf á þeim viðbótum sem ætla má að fylgi þegar Hótelið verður komið í rekstur. Vegna mikilla kjarasamningshækkana á liðnu ári varð nokkurt tap á rekstri sveitarfélagsins 2025. Koma þar einnig til óbein og afleidd áhrif af þessum launahækkunum, s.s. gríðarmikil hækkun lífeyrisskuldbindingar, verulega aukið tap á málaflokki fatlaðs fólks hjá Akureyrarbæ sem við berum að okkar hluta og loks aukinn launakostnaður á hjúkrunarheimili án þess að dagjöld fylgi þeim hækkunum.

Staða sveitarfélagsins er þó áfram feikna sterk og því ekki tilefni til að skerða þá góðu þjónustu sem íbúar njóta. En ekki er heldur svigrúm til að lækka álögur eins og vonast var eftir að hægt yrði, það mun vonandi gerast á næstu árum. Rétt er þó að halda til haga að leikskólagjöld hafa nú verið óbreytt í 10 ár, sem er veruleg raunlækkun. Áfram verður unnið að framkvæmdum og uppbyggingu samkvæmt áætlun en á þessu ári er meðal annars stefnt að því að hefja viðbyggingu við leikskóla og ljúka framkvæmdum við Lækjarvelli.

Undirritaður hefur notið þess að starfa fyrir sveitarfélagið frá 2014, senn lýkur þriðja kjörtímabilinu. Það hefur verið afar gefandi að vinna með samhentum sveitarstjórnum og ekki síður að kynnast íbúunum og sjá samfélagið þróast. Ljóst er nú þegar að ekki verður óbreytt sveitarstjórn eftir kosningar, frekar en verið hefur eftir síðustu kosningar. Við höfum verið heppin með að endurnýjun hefur verið hófleg. Eins gott og það er að fá ferska vinda og nýtt blóð er ekki síður mikilvægt að búa að reynslu til að tengja saman og miðla þekkingu.

Það er mikilvægt að íbúar hafi val um að kjósa öflugt og áhugasamt fólk til starfa í sveitarstjórn svo sem verið hefur. Því ber að hvetja íbúa til umræðu sín á milli og að áhugasamir stígi fram á íbúasíðu. Þó ekki náist kjör til sveitarstjórnar er ekkert tap í því fólgið. Það eru fáir stólar í boði og lýðræðið er fyrir alla. Stundum er sigur fólginn í því að þora að stíga fram, leggja sjálfan sig að veði. Eins er jákvætt fyrir þá sem eru í sveitarstjórn að finna ef íbúar óska starfskrafta þeirra áfram, lítil kveðja og smá klapp á bakið gefur meira en margan grunar.

Það mun svo koma í ljós þegar ný sveitarstjórn hefur verið kjörin hvort minna starfskrafta verður óskað lengur. Það væri heiður og ánægja að fá áfram að sinna þessum skemmtilegum verkefnum. En ef fer á hinn veginn mun ég hætta sáttur, kominn á þann aldur að geta sest í helgan stein með bros á vör.

Með von um að hækkandi sól færi öllum yl og gleði.

Þröstur Friðfinnsson, sveitarstjóri