- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Fulltrúi félagsmiðstöðvarinnar Gryfjunar, hann Bjarni Arason umsjónamaður, var meðal þátttakenda í starfsmannaferð félagsmiðstöðva af Norðurlandi eystra sem styrkt var af Erasmus+ prógrammi Evrópusambandsins í gegn um Samfés og Rannís.
Aðrar félagsmiðstöðvar í þessari ferð eru frá Hörgársveit, Eyjafjarðarsveit og Þingeyjarsveit. Þessar félagsmiðstöðvar hafa verið að vinna að auknu samstarfi sín á milli m.a. með sameiginlegu viðburðahaldi. Tilgangur ferðarinnar til Danmerkur er annars vegar til að treysta stoðir samstarfsins enn frekar og kynna sér starfsemi félagsmiðstöðva og ungmennahúsa í Danmörku með hagsmuni þátttakenda í starfinu í huga.
Á miðvikudaginn heimsótti hópurinn risastóra félagsmiðstöð á Vesterbro í Kaupmannahöfn þar sem 1000 börn í 4. - 7. bekk hafa aðstöðu og greiða sérstaklega fyrir hana og um 400 unglingar sömuleiðis.
Á fimmtudag var förinni heitið til Hilleröd þar sem félagsmiðstöð var skoðuð og fundur tekinn með stjórnendum. Á föstudag fór hópurinn til Nyköbing á Falstri þar sem fundað var með stjórnendum félagsmiðstöðva og ungmennastarfs.
Hópurinn kemur heim reynslunni ríkari og uppfullur af góðum hugmyndum til að efla samstarfið milli félagsmiðstöðvanna og stjórnenda þeirra.
Hér eru fleiri myndir úr ferðinni


