Grenivíkurskóli auglýsir eftir skólaliða

Laus er til umsóknar staða skólaliða við Grenivíkurskóla frá 15. ágúst 2021. Við leitum að barngóðum einstaklingi sem er áreiðanlegur og traustur, fær í mannlegum samskiptum og getur unnið sjálfstætt.  Starfshlutfall er u.þ.b. 85%.

 

Skólaliðar vinna náið með nemendum og öðru starfsfólki skólans; sjá um þrif, gæslu í útiveru, aðstoð í matsal og aðstoð við nemendur.

 

Í Grenivíkurskóla eru rúmlega 50 nemendur í 1. – 10. bekk. Í skólanum er góður starfsandi þar sem leitast er við að haga skólastarfinu í sem fyllsta samræmi við eðli og þarfir nemenda og stuðla að alhliða þroska hvers og eins. Meðal þess sem við leggjum ríka áherslu á er jákvæður skólabragur, góður starfsandi, lýðheilsa og umhverfismennt.  Nánari upplýsingar um skólann má finna á www.grenivikurskoli.is

 

Umsóknarfrestur til til 21. apríl 2021. Senda skal umsókn á netfangið thorgeir@grenivikurskoli.is og verður móttaka umsókna staðfest.

 

Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Þorgeir Rúnar Finnsson, skólastjóri, í síma 414-5410 eða í tölvupósti thorgeir@grenivikurskoli.is