Grenilundur óskar eftir starfsfólki

Grenilundur óskar eftir starfsfólki

Grenilundur hjúkrunarheimili á Grenivík leitar eftir því að ráða starfsfólk í almenna aðhlynningu. Unnið er á 8 tíma vöktum. Hægt er að sækja um allt frá 20% (t.d með skóla) upp í 100% stöður. Sjúkraliðamenntun er kostur.

Grenilundur er hjúkrunarheimili fyrir aldraða þar sem rík áhersla er lögð á heimilislegt andrúmsloft , virðingu og góða samvinnu milli starfsfólks og heimilisfólks. Viðkomandi þarf að gera hafið störf með haustinu.

Fyrir frekari upplýsingar sendið fyrirspurn í:
grenilundur@grenivik.is