- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Töluverðar framkvæmdir eru á vegum sveitarfélagsins í ár og eru þær helstu þessar:
Lokið er við þriðja og síðasta áfanga á glugga- og útihurðaskiptum í Grenivíkurskóla. Það er afar mikilvægt fyrirbyggjandi viðhald. Einnig voru ljós í íþróttahúsi endurnýjuð á árinu sem bæði bætir lýsingu og sparar rafmagn. Unnið er að viðhaldi innandyra í skólanum einnig jafnt og þétt þessi árin.
Í stað gróðurbeðs sem var komið í nokkra órækt, hefur verið úbúinn snotur pallur við skólann, gegnt andyri Íþróttamiðstöðvar. Pallurinn mun t.d. nýtast gestum sundlaugar á sumrin þegar vel viðrar. Jafnframt var sett upp nýtt handrið á vegginn fyrir ofan til að fyrirbyggja fallhættu.
Verið er að leggja kalt vatn að ferðaþjónustusvæði við Akurbakkaveg, þar er fyrsta húsið þegar risið.
Viðbygging við leikskólann Krummafót er komin vel áleiðis. Hún er nálægt 150 fermetrum og mun hýsa alla starfsmannaaðstöðu, stoðþjónustu, fundar- og samkomuaðstöðu. Gamla viðbyggingin sem í daglegu tali hefur verið kennd við besta vin mannsins meðal ferfætlinga, var færð til bráðabirgða en mun síðan hverfa á braut. Þetta mun gerbreyta vinnuaðstöðu og rýmka fyrir fjölgun barna næstu árin. Hönnun miðar einnig við að hægt verði að byggja nýja deild fyrir börn framan á viðbygginguna þegar þörf verður á. Þannig gæti leikskólinn tekið við allt að 40 til 50 börnum, vonandi sjáum við slíka tíma á komandi árum. Hægt er að skoða teikningar að viðbyggingunni í skipulags og teikningasjá, sjá t.d. þessa.
Þá er nú unnið að undirbúningi fyrir malbikun Lækjarvalla en þeir verða malbikaðir á allra næstu dögum. Jafnframt verður malbikað í skemmdir og rifur þar sem þörf er á eftir viðgerðir og framkvæmdir.
Ýmislegt er einnig í gangi hjá einkaaðilum, engin lognmolla á svæðinu.

Snotur pallur og voldugt handrið!

Vinna við vatnslögn er í gangi.

Undirbúningur malbikunar.