Viðtalstímar vegna styrkumsókna í Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra

Ertu með hugmynd að verkefni og vantar aðstoð?

Opnað verður fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra þann 4. október og af því tilefni verða ráðgjafar frá SSNE, Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, á ferð um landshlutann vikuna 4. - 7. október til að veita persónulega ráðgjöf um næstu skref.

Ráðgjafarnir verða hjá okkur á Grenivík þriðjudaginn 5. október kl. 13:30-15:00, skráning fer fram hér en aðstoðin er ykkur að kostnaðarlausu.