Björn lætur af störfum - nýr bókavörður

Oddviti, sveitarstjóri og Björn Ingólfsson er þessi unglegi hægra megin.
Oddviti, sveitarstjóri og Björn Ingólfsson er þessi unglegi hægra megin.

1. ágúst s.l. lét Björn Ingólfsson af launuðum störfum hjá Grýtubakkahreppi. Björn hefur verið bókavörður frá 1984, framan af með störfum sínum sem skólastjóri Grenivíkurskóla. Björn hóf störf fyrir hreppinn sem kennari 1963 til 1964 og frá árinu 1968 hefur hann verið samfellt í starfi hjá Grýtubakkahreppi.  Þetta er ansi langur starfsferill og jafnframt farsæll.

Björn er ekki þekktur fyrir að gera kröfur um laun fyrir öll sín viðvik, áfram sinnir hann m.a. stjórnarstörfum og fleiru fyrir Útgerðarminjasafnið á Grenivík en það eru ólaunuð störf. Sveitarfélagið stendur í mikilli þakkarskuld við Björn fyrir allt hans óeigingjarna starf á mörgum sviðum, ekki síst hans grúsk og ritstörf til að varðveita sögu samfélagsins.

Á Grenivíkurgleði á dögunum þegar samkoma var við Útgerðarminjasafnið og Gömlu bryggju, afhenti Gísli Gunnar oddviti Birni smá þakklætisvott frá sveitarfélaginu. Jafnframt er honum óskað góðrar heilsu og starfsorku áfram, því víst er að hann á ýmislegt ógert enn.

Nýr bókavörður er Inga María Sigurbjörnsdóttir kennari. Verður bókavarðarstarfið hluti af hennar starfi í Grenivíkurskóla, en safnið er einnig skólabókasafn. Er Inga boðin velkomin til starfa og íbúar jafnframt hvattir til að nýta sér bókakost safnsins vel áfram.