Álagning fasteignagjalda 2024

Álagningu fasteignagjalda 2024 er lokið og álagningarseðlar ættu í dag að verða aðgengilegir undir „mínar síður“ á upplýsingasíðunni www.island.is .

ATH.: Álagningarseðlar verða ekki sendir í pósti nema þeim sem sérstaklega óska eftir því við skrifstofu Grýtubakkahrepps.

Álagningarprósentur eru óbreyttar milli ára, nema vatnsskattur sem lækkar úr 0,20% í 0,15% og lóðarleiga sem lækkar úr 0,75% í 0,50%. Gjöldin eru lækkuð til mótvægis við mikla hækkun fasteignamats síðustu ár og einnig hækkun sorphirðugjalda, en þau hækka nú um 20%.

Fasteignamat hefur að jafnaði hækkað um 10 til 12% milli ára sem er bein afleiðing af þróun söluverðs eigna. Töluverður breytileiki er þó eftir staðsetningu og flokkum fasteigna, hækkun gjalda er því misjöfn og fer eftir þróun fasteignamats á viðkomandi eign.

Greiðendur athugið að það verða ekki sendir út greiðsluseðlar v. innheimtu fasteignagjalda, þeir birtast í netbönkum hvers og eins. Eindagi er fyrsti virki dagur næsta mánaðar eftir gjalddaga.

Greiðsluseðill vegna fyrsta gjalddaga, 1. febrúar, er þegar kominn inn í heimabanka, en eindagi hans er 1. mars.

Greiðendur geta þó fengið greiðsluseðla senda í pósti hafi þeir t.d. ekki aðgang að netbanka, og eru allir sem óska eftir því beðnir að hafa sem fyrst samband við skrifstofu Grýtubakkahrepps í síma 414 5400.

Reglur um afslátt af fasteignaskatti til öryrkja og ellilífeyrisþega verða birtar á næstu vikum, eða þegar þær hafa verið staðfestar af sveitarstjórn.