- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Álagningu fasteignagjalda 2026 er lokið og greiðsluseðlar fyrsta gjalddaga aðgengilegir í heimabanka. Álagningarseðlar hafa verið sendir inn og ættu að verða aðgengilegir undir „mínar síður“ á upplýsingasíðunni www.island.is ekki seinna en á morgun laugardag.
ATH.: Álagningarseðlar verða ekki sendir í pósti nema þeim sem sérstaklega óska eftir því við skrifstofu Grýtubakkahrepps.
Greiðendur athugið líka að það verða ekki sendir út greiðsluseðlar v. innheimtu fasteignagjalda, þeir birtast í netbönkum hvers og eins. Eindagi er fyrsti virki dagur næsta mánaðar eftir gjalddaga.
Greiðendur geta þó fengið greiðsluseðla senda í pósti hafi þeir t.d. ekki aðgang að netbanka, og eru allir sem óska eftir því beðnir að hafa sem fyrst samband við skrifstofu Grýtubakkahrepps í síma 414 5400.
Álagningarprósentur eru óbreyttar milli ára, en förgunar- og sorphirðugjöld hækka um 12%. Það er von sveitarstjórnar að jafnvægi fari að nást á úrgangsmálin, tekjur nálgast nú kostnað við málaflokkinn.
Hækkun fasteignagjalda milli ára er nokkuð misjöfn eftir eignum, en algeng hækkun heildargjalda á íbúðarhúsnæði er 4 til 6%.
Upplýsingar um álagningarhlutföll og gjöld er að finna á heimasíðu hreppsins hér.
Reglur um afslátt af fasteignaskatti til öryrkja og ellilífeyrisþega er einnig að finna á heimasíðu hreppsins hér.