- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Frumvarp ríkisstjónar um hækkun veiðigjalda er nú til umfjöllunar hjá atvinnuveganefnd Alþingis. Frumvarpið var til umræðu á fundi sveitarstjórnar í gær og var eftirfarandi bókun samþykkt samhljóða og hefur verið send nefndinni sem umsögn:
Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps ítrekar umsögn sína frá 31. mars 2025.
Á þessu stigi vill sveitarstjórn bæta eftirfarandi við umsögn sína frá í mars;
Sveitarstjórn telur sérstaklega hættulegt til lengri tíma að þrengja svo að samkeppnishæfni sjávarútvegsins, enda á hann í beinni samkeppni við ríkisstyrktan sjávarútveg annarsstaðar. Á sama hátt er ómálefnalegt og varasamt að miða skattlagningu greinarinnar við verð á erlendum mörkuðum þar sem duldir styrkir kunna að vera á bak við og verðlagning er ógagnsæ. Sama gildir um verð á fiskmörkuðum sem kalla má jaðarverð. Skattlagning þarf ætíð að byggja á raunverulegum forsendum og vera gagnsæ.
Sveitarstjórn vísar til umsagnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga og hvetur jafnframt til þess að áform um hækkun veiðigjalda verði milduð verulega, verði unnin í samráði við hagsmunaaðila og breytingar látnar koma fram á lengri tíma. Nefna má einnig loðnubrest, sem hefur komið beint við útsvarstekjur Grýtubakkahrepps á liðnum árum.
Sveitarstjórn ítrekar fyrri tillögu sína um að réttlátara sé að hækka og þrepaskipta fjármagnstekjuskatti. Með því yrði skattlagður ofurarður úr öðrum greinum einnig og þannig gætt jafnræðis. Þá má ætla að með því yrði einnig að einhverju leyti skattlagður arður af fjárfestingum sem eiga uppruna sinn í arði af sjávarútvegi. Það sem þegar hefur verið tekið út úr greininni verður ekki skattlagt með veiðigjöldum.
Skorað er á Alþingi að vega og meta rökstuddar umsagnir þeirra er best þekkja til greinarinnar. Stjórnvöldum ber að stuðla að verðmætasköpun, uppbyggingu útflutningsatvinnuvega og að styrkingu lífvænlegra byggða um landið. Ekki öfugt.“