Endurskoðun aðalskipulags - skipulagslýsing

Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps samþykkti á 538. fundi sínum þann 23. mars sl. að vísa skipulags- og matslýsingu vegna endurskoðunar Aðalskipulags Grýtubakkahrepps í kynningu samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Í skipulagslýsingunni er gerð grein fyrir viðfangsefnum, áherslum, forsendum og fyrirkomulagi skipulagsvinnunnar. Með framlagningu skipulagslýsingar hefst samráð við almenning, umsagnaraðila og aðra hagsmunaaðila um endurskoðun Aðalskipulags Grýtubakkahrepps og er óskað eftir sjónarmiðum og ábendingum sem að gagni geta komið í skipulagsvinnunni.

Skipulagstillagan er aðgengileg á sveitarskrifstofu Grýtubakkahrepps, Túngötu 3, á heimasíðu sveitarfélagsins www.grenivik.is og á vef Skipulagsgáttar undir málsnúmeri 409/2026. Ábendingar og athugasemdir skulu berast í gegnum Skipulagsgátt í síðasta lagi 8. maí 2026. Kynningarfundur vegna skipulagsvinnunnar verður haldinn 29. apríl klukkan 17:00 í matsal Grenivíkurskóla.

Skipulagslýsing.

Lýðtölur.

Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is.

Skipulags- og byggingarfulltrúi