Skólahald næstu viku og viðbragðsáætlun hreppsins

Gott að leika sér áhyggjulaus
Gott að leika sér áhyggjulaus

Um helgina hefur verið unnið eftir tilmælum yfirvalda varðandi breytingar á starfsemi grunnskóla og leikskóla vegna covid-19 veirunnar og samkomubanns.  Hugmyndir hafa verið mótaðar í stórum dráttum um næstu skref og hefur sveitarstjórn í kvöld samþykkt fyrirliggjandi áætlun um starfsemi skólanna.

Skólastjórar og starfsmenn skólanna munu á starfsdegi á morgun klára útfærslu nýrrar starfsáætlunar og munu foreldrar fá upplýsingar beint frá skólunum um þær áætlanir.  Áhrifin eru veigaminni á starfsemi Krummafótar, en verulega þarf að breyta fyrirkomulagi kennslu við Grenivíkurskóla með hópaskiptingu og aðgreiningu hópa í húsinu og milli daga.

Þá hefur viðbragðsáætlun sveitarfélagsins við smitfaraldri einnig verið staðfest.  Mikilvægt er að starfsmenn sveitarfélagsins kynni sér áætlunina sem er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins hér.

Við munum síðan reyna að koma upplýsingum á framfæri jafnóðum og þörf er á, aðstæður breytast jafnharðan.

Að lokum er rétt að minna á upplýsingasíðuna www.covid.is.

Sveitarstjóri