- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps staðfesti ársreikning sveitarfélagsins fyrir árið 2025 á fundi sínum 27. apríl sl. Hér á eftir verður fjallað um ársreikninginn og farið yfir þróun nokkurra liða sérstaklega. Árangur af rekstri sveitarfélags er þó ekki bara mældur í niðurstöðutölu ársreiknings, heldur ekki síður í getu þess til að standa fyrir góðri þjónustu við íbúa, tryggja vöxt og viðgang atvinnulífs og samfélags og sjálfbærni þess til lengri tíma.
Grýtubakkahreppur er með mjög viðamikinn rekstur og veitir fjölbreyttari þjónustu en títt er um lítil sveitarfélög. Af því leiðir að hlutfall launa í rekstrinum er óvenju hátt og sveitarfélagið er afar næmt fyrir miklum sveiflum í kjarasamningum. Eins og fram kom í frétt frá í mars, urðu gríðarlegar kjarasamningshækkanir á liðnu ári sem snertu stofnanir sveitarfélagsins beint. En einnig höfðu þær frekari áhrif með auknum halla á rekstri málaflokks fatlaðra, auknum halla á hjúkrunarheimili og loks mikilli hækkun á lífeyrisskuldbindingu sveitarfélagsins.
Afkoma A-hluta sveitarfélagsins var neikvæð um 42 mkr. á árinu 2025. Sá rekstur sem tilheyrir A-hluta var þó í raun ekki neikvæður á árinu 2025, en hallinn samanstendur af eftirfarandi liðum:
Samtals eru þessir þrír liðir því rúmar 42 mkr., um þá verður fjallað sérstaklega hér aftar.
B-hluti rekstrar skilaði afgangi, m.a. vegna söluhagnaðar eigna, en samanlögð niðurstaða ársreiknings sveitarfélagsins á árinu 2025 var neikvæð um 21,4 mkr. Þó halli sé bagalegur, hefur þessi halli ársins lítil áhrif á styrk sveitarfélagsins til lengri tíma. Afgangur var meiri tvö árin á undan þannig að sveitarfélagið stenst jafnvægisreglu um fjármál sveitarfélaga og horfur eru betri fyrir þetta ár, þess sér þegar stað á fyrstu mánuðum ársins.
Eiginfjárhlutfall 2025 lækkar lítillega og er 51,3%.
Skuldahlutfall breytist óverulega og er 44,9%.
Skuldaviðmið skv. reglum um fjárhagsleg viðmið hækkar lítillega og er 35,5%.
Þessar tölur sýna allar sterka stöðu, en vegna undirliggjandi eigna er raunstaðan þó mikið sterkari, raunar er heildar fjárhagsstaða Grýtubakkahrepps gríðarlega sterk. Horfur sveitarfélagsins eru góðar og geta þess til að standa áfram fyrir uppbyggingu og góðri þjónustu er sannarlega til staðar.
Langtímalán
Staða langtímaskulda Grýtubakkahrepps í árslok 2025 er 144 mkr.
Í árslok 2014 var staða langtímaskulda 182,5 mkr. sem jafngildir 288 mkr. á verðlagi í árslok 2025. Langtímaskuldir nú eru því að raunvirði aðeins 50% af því sem þær voru í árslok 2014. Á móti hefur lífeyrisskuldbinding hækkað mikið.
Leiguíbúðir
Árið 2014 átti Grýtubakkahreppur 10 leiguíbúðir, síðan hafa 6 nýjar verið byggðar en 8 íbúðir seldar, jafnan yfir bókfærðu verði.
Í árslok 2014 var bókfært verð leiguíbúða hreppsins 115 mkr., fasteignamat þeirra var þá 142 mkr. eða um 23% hærra.
Í árslok 2025 var bókfært verð leiguíbúða hreppsins 144,6 mkr., en fasteignamat þeirra kr. 294 mkr. eða meira en 100% yfir bókfærðu verði. Þrátt fyrir sölu íbúða og innlausn söluhagnaðar í hverju tilviki og þrátt fyrir að íbúðirnar séu færri en áður var, hefur virði eignar í þeim umfram bókfært verð, stórhækkað. Það er afleiðing mjög hækkaðs markaðsverðs íbúða. Sú þróun hefur orðið vegna aukinnar trúar á framtíð búsetu í sveitarfélaginu. Það er ekki lítils virði.
Lífeyrisskuldbinding
Til útskýringar þá er lífeyrisskuldbinding hreppsins ábyrgð hans á greiðslu lífeyris til fyrrverandi starfsmanna sem áttu réttindi í eldra kerfi hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Skuldbindingin er öll frá fyrri tíð, sama og engar nýjar skuldbindingar hafa bæst við frá 2014, né eiga eftir að bætast við áfram. Ábyrgðin er á greiðslu þess hluta lífeyris sem eignir lífeyrissjóðsins sjálfs duga ekki fyrir. Ber sveitarfélagið nú ábyrgð á rúmlega 75% hluta en eignir LSR duga einungis fyrir tæplega 25% hluta vænts lífeyris skv. mati tryggingastærðfræðings. Þetta hlutfall sveitarfélagsins er mikiið hærra en almennt gerist og skuldbindingin hefur einnig hækkað óvenjulega mikið frá 2014. Á því eru skýringar sem ekki verða raktar hér.
Lífeyrisréttindin sem skuldbindingin tekur til, fara eftir lögum og reglugerð um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, sem sumir starfsmenn sveitarfélaga greiddu til á sínum tíma. Sveitarfélagið hefur ekkert yfir þeim réttindum að segja og þau verða ekki skert. Rétt er að undirstrika að fyrrverandi starfsmenn sveitarfélagsins eru vel að sínum lífeyri komnir og sveitarfélagið hefur fulla burði til að standa við þessar skuldbindingar sínar, sem og allar aðrar.
Hér má sjá yfirlit yfir þróun lífeyrisskuldbindingar Grýtubakkahrepps, súlurnar sýna gjaldfærslu hvers árs, línan sýnir stöðu lífeyrisskuldbindingar í lok hvers árs, í þúsundum króna:

Þjónusta við fatlaða
Grýtubakkahreppur er aðili að svæðisbundinni þjónustu við fatlað fólk ásamt fjórum öðrum nágrannasveitarfélögum, með Akureyri sem leiðandi sveitarfélag. Ákveðið hlutfall af útsvarstekjum sveitarfélagsins rennur til Akureyrarbæjar sem sér um allan rekstur og stjórn málaflokksins. Nýr samningur var gerður um þjónustuna 2024 en á þeim tíma var lítið tap af rekstri þjónustunnar og fyrri ríkisstjórn hafði verið að bæta fjámögnun málaflokksins jafnt og þétt. Á árinu 2025 urðu miklar hækkanir á launakostnaði og ný ríkisstjórn hefur ekki haldið áfram að styrkja rekstur þessa málaflokks enn sem komið er. Þetta leiddi til stóraukins halla á rekstri þjónustunnar á ný, sem lendir á Grýtubakkahreppi í hlutfalli við íbúafjölda í formi viðbótarframlags. Við verðum að vona og trúa að ríkisstjórnin bregðist við þessum vanda sem allra fyrst.
Grenilundur
Sveitarfélagið hefur rekið Grenilund frá 1998, í upphafi sem dvalarheimili sem hefur með árunum þróast yfir í hreint hjúkrunarheimili. Fjármögnun hjúkrunarheimila er skv. lögum á ábyrgð ríkisins sem greiðir daggjöld til heimilanna. En eins og þekkt er hefur þar lengst af vantað uppá. Sveitarfélagið hefur tekið á sig hallann, en mörg sveitarfélög hafa gefist upp á rekstri hjúkrunarheimila og skilað honum til ríkisins. Sveitarstjórn hefur til þessa ekki viljað fara þá leið. Sveitarstjórn vill halda þeirri góðu þjónustu sem Grenilundur veitir og telur erfitt að tryggja að við yfirtöku ríkisins myndi hún haldast jafn góð til langframa. Þá er ekki sjálfgefið að ríkið vilji reka svo smáa einingu til lengdar. Þar á bæ hefur gjarna ríkt ofurtrú á stórum einingum, þó rekstur þeirra gangi alla vega, sbr. t.d. Landsspítalann. Sveitarstjórn telur þjónustu Grenilundar afar mikilvæga í okkar samfélagi og vill standa vörð um hana svo lengi sem nokkur kostur er.
Önnur þjónusta
Vegna staðsetningar sveitarfélagsins, þarf þjónusta við íbúa helst að vera betri en annarsstaðar, til að það sé aðlaðandi búsetukostur. Hér er rétt að nefna nokkra þætti þjónustu sem máli skipta og hafa verið á borði sveitarstjórnar síðustu árin.
Einnig er vert að nefna að á síðustu árum hefur sveitarfélagið lagt mikið í viðhald fasteigna sem mun vonandi skila sér í góðri endingu og minni rekstrarkostnaði til framtíðar.
Atvinnulíf
Eitt mikilvægasta hlutverk sveitarstjórnar er að hlúa að atvinnulífi, huga að umgjörð þess og reyna að laða að ný tækifæri. Á síðustu árum hefur hér náðst markverður árangur sem horft er til, ekki síst með uppbyggingu hótelsins á Skælu. Uppbygging hefur einnig verið mikil hjá Pharmarctica og Gjögur hefur fjárfest myndarlega í fiskvinnslunni og í nýjum skipum. Þetta er sá grunnur sem styrkur samfélagsins byggir á til framtíðar og sveitarstjórn er sannfærð um að góð ár séu framundan í sveitarfélaginu, á hvaða þætti sem litið er.
Að lokum
Eins og að framan sagði er heildar fjárhagsstaða Grýtubakkahrepps feikna sterk og allar framtíðarhorfur einnig góðar. Sveitarstjórn telur í því ljósi ekki rétt að skerða þjónustu eða hækka gjöld frekar en gert hefur verið. Það er von sveitarstjórnar að íbúar kunni að meta þessa stefnu, ekki síst barnafjölskyldur og eldri íbúar. Því hver ætti að njóta hinnar sterkru stöðu sveitarfélagsins ef ekki íbúarnir sjálfir?
Hér er hlekkur á ársreikning 2025.