Deiliskipulag Ægissíðu og Lækjarvalla á Grenivík – auglýsing deiliskipulagstillögu

Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps samþykkti á fundi sínum þann 28. júní 2021 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi íbúðarbyggðar og miðsvæðis við Ægissíðu, Túngötu og Lækjarvelli á Grenivík skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagssvæðið er alls um 13 ha. að stærð og nær til gatnanna Ægissíðu, Túngötu og Lækjarvalla á Grenivík. Í deiliskipulagstillögunni felst að skilgreindar verða nýjar íbúðarlóðir við fyrrgreindar götur, breytingar eru gerðar á lóðarmörkum nokkurra lóða auk þess sem eldra deiliskipulag fyrir Lækjarvelli mun falla úr gildi við gildistöku nýs deiliskipulags.

Skipulagstillagan liggur frammi á skrifstofu Grýtubakkahrepps frá 9. júlí 2021 til og með 20. ágúst 2021 og verður einnig aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins, www.grenivik.is.

Hér má finna skipulagsuppdrátt tillögunnar.  Hér má finna Greinargerð.  Hér má finna skýringarmynd.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að koma ábendingum á framfæri til 20. ágúst 2021. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skulu berast á skrifstofu Grýtubakkahrepps, Túngötu 3, 610 Grenivík, eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is.

Skipulags- og byggingarfulltrúi