- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Sveitarstjórnarfundur nr. 550
Mánudaginn 19. október 2026, kom sveitarstjórn Grýtubakkahrepps saman til fundar á skrifstofu hreppsins að Túngötu 3 á Grenivík. Eftirtaldir sveitarstjórnarfulltrúar voru mættir; Gísli Gunnar Oddgeirsson, Þorgeir Rúnar Finnsson, Árni Páll Jóhannsson, Ingólfur Kr. Ásgeirsson og Birgir Már Birgisson sem var mættur í forföllum Ingu Maríu Sigurbjörnsdóttur.
Einnig sat sveitarstjóri fundinn.
Fundurinn hófst kl. 16:15.
Gjörðir fundarins voru þessar:
Arnar Ólafsson, skipulagsfulltrúi hjá Embætti skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, og Árni Ólafsson, ráðgjafi Grýtubakkahrepps við aðalskipulagsgerð komu á fund sveitarstjórnar. Rædd voru ýmis atriði er varða endurskoðun aðalskipulags Grýtubakkahrepps.
Fundargerð lögð fram.
Fundargerð lögð fram.
Fundargerð lögð fram.
Fundargerð lögð fram.
Sveitarstjórn furðar sig á tillögum um miklar gjaldskrárhækkanir og hvetur til þess að miðað verði við samkomulag sem sveitarfélögin hafa undirgengist um að gjaldskrár hækki ekki meira en um 2,5%. Rekstrarlegt svigrúm virðist nokkurt í áætlun, en einnig mun lækkun verðbólgu koma rekstri Norðurorku beint til góða í lækkun fjármagnsliða.
Þá er sveitarstjórn farið að lengja verulega eftir að viðræður hefjist um „þróun gjaldskrár Reykjaveitu til lengri tíma“, s.s. boðað var í svari Norðurorku til sveitarstjórnar þann 6. nóvember 2025.
Fundargerð lögð fram.
Þröstur Friðfinnsson fer með umboð sveitarfélagsins á fundinum.
Fundargerð lögð fram.
Þröstur Friðfinnsson fer með umboð sveitarfélagsins á fundinum.
Eftir auglýsingu barst eitt tilboð í rjúpnalandið í Hvammi frá Ásgeiri í Höfða ehf. að upphæð 525.300 kr. per. ár. Sveitarstjórn samþykkir að taka tilboðinu fyrir árin 2026 og 2027 og felur sveitarstjóra að ganga frá samningi þar um. Ingólfur Kr. Ásgeirsson og Árni Páll Jóhannsson véku af fundi undir þessum lið.
Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið og vísar því til fjárhagsáætlunargerðar.
Erindi hafnað.
Erindi hafnað.
Erindi lagt fram. Sveitarstjóra falið að vinna að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
Rætt um forsendur fjárhagsáætlunargerðar og mögulegar hagræðingaraðgerðir í ljósi áætlaðrar skerðingar á fjárframlögum Jöfnunarsjóðs. Fyrri umræðu frestað.
Fleira ekki tekið fyrir, fundargerð lesin upp og samþykkt. Fundi slitið kl. 21:06.
Fundargerð ritaði Þorgeir Rúnar Finnsson.