Sveitarstjórnarfundur nr. 549

05.10.2026 00:00

Sveitarstjórnarfundur nr. 549

Mánudaginn 5. október 2026, kom sveitarstjórn Grýtubakkahrepps saman til fundar á skrifstofu hreppsins að Túngötu 3 á Grenivík. Eftirtaldir sveitarstjórnarfulltrúar voru mættir; Gísli Gunnar Oddgeirsson, Þorgeir Rúnar Finnsson, Árni Páll Jóhannsson, Ingólfur Kr. Ásgeirsson og Birgir Már Birgisson sem var mættur í forföllum Ingu Maríu Sigurbjörnsdóttur.

Einnig sat sveitarstjóri fundinn.

Fundurinn hófst kl. 16:15.

Gjörðir fundarins voru þessar:

  1. Fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga, dags. 11. sept. 2026.

Fundargerð lögð fram.

  1. Fundargerð samráðsfundar v. samnings um barnaverndarþjónustu, dags. 1. okt. 2026.

Fundargerð lögð fram.

  1. Ársskýrsla Héraðsskjalasafnsins á Akureyri fyrir árið 2025.

Ársskýrsla lögð fram.

  1. Frá Innviðaráðuneyti, spurningalisti vegna vinnu við stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga, dags. 6. júlí 2026.

Sveitarstjórn fór yfir svör við spurningalistanum og felur sveitarstjóra að senda þau inn til ráðuneytis.

  1. Frá SSNE, v. áætlunar um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra, dags. 11. sept. 2026.

Sveitarstjórn staðfestir áætlunina fyrir sitt leyti.

  1. Frá Vinnumálastofnun, niðurstöður umræðufundar um aðgerðir í fjölmenningarmálum, dags. 4. júní 2026.

Erindi lagt fram.

  1. Erindi frá Berginu Headspace, ósk um viðbótarstyrk, dags. 24. sept. 2026.

Erindi vísað til fjárhagsáætlunargerðar.

  1. Erindi frá SSNE, v. Kvennaathvarfs, styrkbeiðni, dags. 23. sept. 2026.

Sveitarstjórn samþykkir að styrkja Kvennaathvarfið í samræmi við íbúafjölda sveitarfélagsins. Miðað við fyrirliggjandi útreikning er upphæðin kr. 49.662,- og rúmast hún innan fjárhagsáætlunar.

  1. Erindi frá Markaðsstofu Norðurlands, v. flugklasans Air 66N, dags. 22. sept. 2026.

Sveitarstjórn samþykkir að styrkja verkefnið fyrir árin 2027-2029 um sem nemur 500 kr. per íbúa á ári.

  1. Boð á stofnfund Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga, haldinn 7. okt. 2026.

Þröstur Friðfinnsson fer með umboð sveitarfélagsins á stofnfundinum.

  1. Fjárhagsáætlun Grýtubakkahrepps 2027 – 2030, fyrri umræða.

Rætt um ýmsar forsendur fjárhagsáætlunar, m.a. gjaldskrár og fjárfestingaáætlun. Fyrri umræðu frestað.

 

Fleira ekki tekið fyrir, fundargerð lesin upp og samþykkt. Fundi slitið kl. 19:30.

Fundargerð ritaði Þorgeir Rúnar Finnsson.