- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Sveitarstjórnarfundur nr. 548
Mánudaginn 28. september 2026, kom sveitarstjórn Grýtubakkahrepps saman til fundar á skrifstofu hreppsins að Túngötu 3 á Grenivík. Eftirtaldir sveitarstjórnarfulltrúar voru mættir; Gísli Gunnar Oddgeirsson, Þorgeir Rúnar Finnsson, Árni Páll Jóhannsson, Ingólfur Kr. Ásgeirsson og Birgir Már Birgisson sem var mættur í forföllum Ingu Maríu Sigurbjörnsdóttur.
Einnig sat sveitarstjóri fundinn.
Fyrir fundinn fór sveitarstjórn ásamt sveitarstjóra á Grenilund og kynnti sér starfsemina þar.
Fundurinn hófst kl. 16:15.
Gjörðir fundarins voru þessar:
Þinggerð lögð fram.
Fundargerð lögð fram.
Fundargerð lögð fram.
Fundargerð lögð fram.
Fundargerð lögð fram.
Fundargerð lögð fram.
Fundargerðir lagðar fram.
Fundargerð lögð fram.
Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps staðfestir tilnefningu á Gísla Gunnari Oddgeirssyni í ráðið fyrir hönd sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins.
Þröstur Friðfinnsson sækir fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.
Þröstur Friðfinnsson fer með umboð sveitarfélagsins á fundinum.
Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps tekur undir ályktun sem samþykkt var á Landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga þann 25. september sl. um að sveitarfélög sýni ábyrgð gagnvart stöðu efnahagasmála og taki virkan þátt í að bæta stöðuna.
Erindi frestað.
Eftirtaldir skipaðir í öldungaráð Grýtubakkahrepps 2026-2030:
Aðalmenn: Ingólfur Kr. Ásgeirsson, Inga María Sigurbjörnsdóttir og Fjóla Valborg Stefánsdóttir fyrir hönd sveitarstjórnar.
Bergvin Jóhannsson, Guðný Sverrisdóttir og Ingibjörg Svafa Siglaugsdóttir fyrir hönd félags eldri borgara í Grýtubakkahreppi.
Kristbjörg Heiður Kristjánsdóttir fyrir hönd HSN.
Varamaður: Árni Páll Jóhannsson fyrir hönd sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps lýsir vonbrigðum með að ekki hafi verið tekið tillit til fyrri umsagna sveitarfélagsins, til dæmis varðandi kafla um samstarf sveitarfélaga. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að ganga frá og senda inn umsögn sem byggir á fyrri umsögnum og í samræmi við umræður á fundinum.
Fleira ekki tekið fyrir, fundargerð lesin upp og samþykkt. Fundi slitið kl. 20:09.
Fundargerð ritaði Þorgeir Rúnar Finnsson.