- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Sveitarstjórnarfundur nr. 547
Mánudaginn 14. september 2026, kom sveitarstjórn Grýtubakkahrepps saman til fundar á skrifstofu hreppsins að Túngötu 3 á Grenivík. Eftirtaldir sveitarstjórnarfulltrúar voru mættir; Gísli Gunnar Oddgeirsson, Þorgeir Rúnar Finnsson, Árni Páll Jóhannsson, Ingólfur Kr. Ásgeirsson og Birgir Már Birgisson sem var mættur í forföllum Ingu Maríu Sigurbjörnsdóttur.
Einnig sat sveitarstjóri fundinn.
Fyrir fundinn fór sveitarstjórn ásamt sveitarstjóra í heimsóknir í Íþróttamiðstöðina og í Grenivíkurskóla og kynnti sér starfsemina þar.
Fundurinn hófst kl. 16:15.
Gjörðir fundarins voru þessar:
Fundargerð lögð fram.
Fundargerð lögð fram.
Fundargerð lögð fram.
Fundargerð lögð fram.
Fundargerð lögð fram.
Undir dagskrárlið nr. 6 kemur fram að stjórn Norðurorku telji að erindi frá sveitarstjórn Grýtubakkahrepps sé byggt á misskilningi. Sveitarstjórn áréttar af því tilefni, að stjórn Norðurorku hefur að áliti sveitarstjórnar, kosið að mistúlka erindi sveitarstjórnar frá í júní og þrátt fyrir ítrekanir hafa enn ekki borist viðunandi svör frá stjórn Norðurorku. Sveitarstjórn harmar viðhorf sem fram koma í svörum stjórnar Norðurorku og hvetur til góðra og málefnalegra samskipta.
Fundargerð lögð fram.
Fundargerð lögð fram. Í lið 1 sækir Grýtubakkahreppur um byggingaráform og byggingarleyfi/heimild fyrir viðbyggingu við leikskóla á lóðinni Lækjarvellir 5. Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin.
a. Borgir 1, breyting deiliskipulags.
Byggingarfulltrúa hefur borist byggingarleyfisumsókn vegna byggingar frístundahúss á lóðinni Borgum 1 (L221418).
Á svæðinu er í gildi deiliskipulagið Borgir í landi Grýtubakka I og samkvæmt aðaluppdráttum sem fylgdu umsókninni hliðrast byggingarreiturinn á lóðinni um 2 metra til suð-austurs miðað við gildandi deiliskipulag. Byggingarfulltrúi óskar umsagnar sveitarstjórnar Grýtubakkahrepps um áformin.
Sveitarstjórn telur að um óverulega breytingu á deiliskipulagi sé að ræða skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Talið er að áformin varði ekki aðra en umsækjanda og sveitarfélagið sjálft og því skuli fallið frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en óska skal umsagnar Minjastofnunar Íslands um áformin. Lóðareiganda er falið að leggja fram deiliskipulagsbreytingarblað og er skipulags- og byggingarfulltrúa falið að fullnusta deiliskipulagsbreytinguna þegar þau gögn liggja fyrir auk jákvæðrar umsagnar Minjastofnunar Íslands.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins.
Ákvörðun um veitingu einfaldrar ábyrgðar, veðsetningu tekna til tryggingar ábyrgðinni og umboð til undirritunar lánasamnings vegna láns Norðurorku hf. í eigu sveitarfélagsins hjá Lánasjóði sveitarfélaga:
Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps samþykkir hér með á fundi sínum að veita einfalda ábyrgð á láni Norðurorku hf. hjá Lánasjóði sveitarfélaga og veðsetja tekjur sveitarfélagsins til tryggingar ábyrgðinni í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 1. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Ábyrgðin nær til láns að fjárhæð, allt að kr. 300.000.000,- ásamt vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og öðrum kostnaði, samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru þegar lánið er tekið. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni. Sveitarstjórnin hefur kynnt sér skilmála viðkomandi skuldabréfaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins. Samþykkið nær jafnframt til undirritunar lánasamnings og þess að sveitarfélagið taki á sig þær skyldur sem þar greinir.
Eignarhlutur Grýtubakkahrepps í Norðurorku hf. er 0,1817% og er hlutdeild sveitarfélagsins í þessari ábyrgð því nú að upphæð kr. 545.100,-.
Lánið er tekið til að fjármagna framkvæmdir í hitaveitu og fráveitu. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.
Sveitarstjórnin skuldbindur sveitarfélagið sem eiganda Norðurorku hf. til að breyta ekki ákvæðum samþykkta félagsins sem kveða á um að félagið megi ekki, að neinu leyti, fara í eigu einkaaðila.
Ef sveitarfélagið selur eignarhlut sinn til annarra opinberra aðila, skuldbindur sveitarfélagið sig til að tryggja að nýr eigandi yfirtaki ábyrgð á láninu í hlutfalli við eignarhlut sinn í félaginu.
Jafnframt er Þresti Friðfinnssyni, sveitarstjóra, kt. 260861-2479, veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Grýtubakkahrepps, sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.
Sveitarstjórn samþykkir að greiða kr. 150.000,- vegna hádegisgæslu og föstudagsfrágangs veturinn 2026-2027. Upphæðin rennur í ferðasjóð nemenda vegna skólaferðalags vorið 2027. Upphæðin rúmast innan fjárhagsáætlunar.
Erindi samþykkt.
Eftirtalin ungmenni skipuð í ungmennaráð Grýtubakkahrepps 2026-2027:
Aðalmenn: Rakel Ýr Ingibjargardóttir, Ágúst Hrafn Guðjónsson, Björg Guðrún Sigurbjörnsdóttir, Angantýr Magni Guðmundsson og Lilja Björk Einisdóttir.
Varamaður: Trausti Loki Stefánsson.
Frestað til næsta fundar.
Gísli Gunnar Oddgeirsson fer með umboð sveitarfélagsins á fundinum.
Þröstur Friðfinnsson fer með umboð sveitarfélagsins á fundinum.
Sveitarstjórn þakkar fyrir góða kynningu og fagnar þeirri vinnu sem unnin hefur verið við stígagerð í sumar.
Erindi lagt fram.
Erindi lagt fram.
Erindi lagt fram.
Erindi lagt fram.
Fleira ekki tekið fyrir, fundargerð lesin upp og samþykkt. Fundi slitið kl. 20:51.
Fundargerð ritaði Þorgeir Rúnar Finnsson.