- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Sveitarstjórnarfundur nr. 546
Mánudaginn 17. ágúst 2026, kom sveitarstjórn Grýtubakkahrepps saman til fundar á skrifstofu hreppsins að Túngötu 3 á Grenivík. Eftirtaldir sveitarstjórnarfulltrúar voru mættir; Gísli Gunnar Oddgeirsson, Þorgeir Rúnar Finnsson, Inga María Sigurbjörnsdóttir, Árni Páll Jóhannsson og Ingólfur Kr. Ásgeirsson.
Einnig sat sveitarstjóri fundinn. Fyrir fundinn fór sveitarstjórn ásamt sveitarstjóra í heimsóknir í leikskólann Krummafót og í áhaldahús Grýtubakkahrepps og kynnti sér starfsemina þar.
Fundurinn hófst kl. 16:15.
Gjörðir fundarins voru þessar:
Fundargerð lögð fram. Varðandi lið 4 í fundargerðinni um reglugerðarbreytingar er sveitarstjóra falið að senda inn umsögn í samráðsgátt sem vísar til og tekur undir umsögn SSNE um málið.
Fundargerð lögð fram.
Fundargerð lögð fram.
Fundargerð lögð fram.
Fundargerð lögð fram.
Í lið 1 sækir Grýtubakkahreppur um byggingaráform og byggingarleyfi/heimild fyrir viðbyggingu við leikskóla á lóðinni Lækjarvellir 5. Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar erindinu með vísan í athugasemdalista.
Í lið 2 sækir Hreinn Skúli Erhardsson um byggingaráform og byggingarleyfi/heimild fyrir viðbyggingu við einbýlishús á lóðinni Lækjarvellir 11. Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin.
Lagt fram til kynningar.
a. Umsókn um byggingarreit fyrir íbúðarhús á jörðinni Nesi.
Helguhóll ehf. sækir um byggingarreit fyrir íbúðarhúsi á jörðinni Nesi L153074 sbr. meðfylgjandi erindi og afstöðumynd. Hámarks byggingarheimild innan byggingarreits yrði 600 fermetrar og hámarkshæð húss 7 metrar og yrði vegtenging að húsinu frá núverandi heimreið jarðarinnar.
Sveitarstjórn samþykkir byggingarreit fyrir íbúðarhús á jörðinni Nesi með fyrirvara um jákvæða umsögn Minjastofnunar Íslands um áformin.
b. Umsókn um lóð undir spennistöð á Grenivík.
Rarik sækir um 20 fm. lóð undir spennistöð í brekku norðan við frystihús Gjögurs. Sveitarstjórn samþykkir að stofna og úthluta lóðinni í samræmi við erindi, enda liggi fyrir samþykki Gjögurs hf.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir við leyfisveitinguna. Áður samþykkt með tölvupóstum.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir við leyfisveitinguna. Áður samþykkt með tölvupóstum.
Erindi vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
Erindi lagt fram.
Guðlaug Kristjánsdóttir skipuð í ráðið fyrir hönd Grýtubakkahrepps.
Erindi lagt fram.
Erindi lagt fram.
Erindi lagt fram.
Ákveðið að bjóða út rjúpnaveiði í Hvammslandi í haust með sambærilegu sniði og áður hefur verið gert.
Fleira ekki tekið fyrir, fundargerð lesin upp og samþykkt. Fundi slitið kl. 20:34.
Fundargerð ritaði Þorgeir Rúnar Finnsson.