Sveitarstjórnarfundur nr. 545

06.07.2026 00:00

Sveitarstjórnarfundur nr. 545

Mánudaginn 6. júlí 2026, kom sveitarstjórn Grýtubakkahrepps saman til fundar á skrifstofu hreppsins að Túngötu 3 á Grenivík. Eftirtaldir sveitarstjórnarfulltrúar voru mættir; Gísli Gunnar Oddgeirsson, Þorgeir Rúnar Finnsson, Árni Páll Jóhannsson, Ingólfur Kr. Ásgeirsson og Sigrún Björnsdóttir sem var mætt í fjarveru Ingu Maríu Sigurbjörnsdóttur.

Einnig sat sveitarstjóri fundinn.

Fundurinn hófst kl. 16:15.

Gjörðir fundarins voru þessar:

  1. Fundargerð stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, dags. 12. júní 2026.

Fundargerð lögð fram auk ársreiknings samtakanna fyrir árið 2025.

  1. Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Nle. 3. júní og 10. júní 2026.

Fundargerðir lagðar fram.

  1. Fundargerð stjórnar Norðurorku, dags. 16. júní 2026.

Fundargerð lögð fram.

  1. Fundargerð aðalfundar Túns ehf., dags. 4. júní 2026.

Fundargerð lögð fram.

  1. Fundargerð 116. afgreiðslufundar SBE, dags. 25. júní 2026.

Fundargerð lögð fram.

  1. Frá Sambandi ísl. sveitarfélaga, framboð til formanns og stjórnar, dags. 23. og 26. júní 2026.

Erindi lögð fram.

  1. Frá SSNE, verkefni um rafrænt losunarbókhald, dags. 3. júlí 2026.

Sveitarstjórn samþykkir að Grýtubakkahreppur taki þátt í verkefninu.

  1. Frá Landssambandi eldri borgara, áhersluatriði varðandi öldungaráð, dags. 23. júní 2026.

Erindi lagt fram.

  1. Frá Farsældarráði Norðurl. eystra, Farsældardagur 4. sept. 2026.

Erindi lagt fram.

  1. Frá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, Evrópsk samgönguvika í september, dags. 20. maí 2026.

Erindi lagt fram.

  1. Frá Jafnréttisstofu, Landsfundur um jafnréttismál sveitarfélaga, haldinn 17. sept. 2026.

Erindi lagt fram.

  1. Skipun í nefndir og stjórnir á vegum Grýtubakkahrepps, framhald.

Fræðslu- og æskulýðsnefnd.

Aðalmenn skipaðir: Sigrún Björnsdóttir formaður, Árni Páll Jóhannsson, Helga Margrét Freysdóttir, Jakob Þór Þórðarson og Hildur Björk Benediktsdóttir.

Varamenn skipaðir: Ingibjörg Þorvaldsdóttir, Hákon Fannar Ellertsson og Guðjón Ágúst Kristinsson.

Landbúnaðar- og umhverfisnefnd.

Aðalmenn skipaðir: Margrét Melstað formaður, Ingólfur Kr. Ásgeirsson, Anna Bára Bergvinsdóttir, Ásta Fönn Flosadóttir og Hörður Guðmundsson.

Varamenn skipaðir: Guðjón Arnar Þórsteinsson, Stefán Hrafn Stefánsson og Svala Fanney Snædahl Njálsdóttir.

Bókasafnsnefnd.

Aðalmenn skipaðir: Þórunn Indiana Lúthersdóttir, Sigríður Björg Haraldsdóttir og Hermann Gunnar Jónsson.

Varamenn skipaðir: Ingólfur Björnsson og Sigþór Hilmar Guðnason.

Fulltrúi í fulltrúaráð EBÍ.

Aðalmaður skipaður: Þröstur Friðfinnsson.

Varamaður skipaður: Gísli Gunnar Oddgeirsson.

Fulltrúi í stjórn Tónlistarskóla Eyjafjarðar.

Aðalmaður skipaður: Þorgeir Rúnar Finnsson.

Varamaður skipaður: Ingólfur Kr. Ásgeirsson.

Fulltrúi í svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar.

Aðalmaður skipaður: Þröstur Friðfinnsson.

Varamaður skipaður: Árni Páll Jóhannsson.

Varafulltrúi í stjórn Minjasafnins á Akureyri

Varafulltrúi skipaður: Inga María Sigurbjörnsdóttir.

Öðrum skipunum frestað til næsta fundar.

 

Fleira ekki tekið fyrir, fundargerð lesin upp og samþykkt. Fundi slitið kl. 18:48.

Fundargerð ritaði Þorgeir Rúnar Finnsson.