Sveitarstjórnarfundur nr. 544

15.06.2026 00:00

Sveitarstjórnarfundur nr. 544

Mánudaginn 15. júní 2026, kom sveitarstjórn Grýtubakkahrepps saman til fundar á skrifstofu hreppsins að Túngötu 3 á Grenivík. Eftirtaldir sveitarstjórnarfulltrúar voru mættir; Gísli Gunnar Oddgeirsson, Inga María Sigurbjörnsdóttir, Árni Páll Jóhannsson, Ingólfur Kr. Ásgeirsson og Birgir Már Birgisson sem var mættur í fjarveru Þorgeirs R. Finnssonar.

Einnig sat sveitarstjóri fundinn.

Fundurinn hófst kl. 16:15.

Gjörðir fundarins voru þessar:

  1. Fundargerðir stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga, dags. 28. maí og 9. júní 2026.

Fundargerðir lagðar fram.

  1. Fundargerð aðalfundar Greiðrar leiðar ehf., dags. 9. júní 2026.

Fundargerð lögð fram.

  1. Fundargerð hluthafafundar Greiðrar leiðar ehf., dags. 9. júní 2026.

Fundargerð lögð fram.

  1. Fundargerð 114. afgreiðslufundar SBE, dags. 2. júní 2026.

Fundargerð lögð fram.

  1. Fundargerð 115. afgreiðslufundar SBE, dags. 11. júní 2026.

Fundargerð lögð fram.

Í lið 1 er Birgi Péturssyni veitt stöðuleyfi fyrir 40 feta gám á lóðinni Lundsbraut 4a til 12 mánaða.

Í lið 2 er samþykkt erindi frá Pharmarctica vegna breytinga á áður samþykktum teikningum viðbyggingar við iðnaðarhúsnæði á lóðinni Lundsbraut 2.

  1. Fundargerðir kjörstjórnar Grýtubakkahrepps, dags. 16. maí og 12. júní 2026.

Fundargerðir lagðar fram.

  1. Fundargerð fræðslu- og æskulýðsnefndar, dags. 28. maí 2026.

Fundargerð lögð fram.

  1. Fundargerð landbúnaðar- og umhverfisnefndar, dags. 4. júní 2026.

Fundargerð lögð fram.

Nefndin leggur fram eftirfarandi tillögu varðandi upprekstur:

Landbúnaðar- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að upprekstrardagur sé

miðaður við 10. júní.

Eins og áður eru bændur eindregið hvattir til að gæta hófs við upprekstur og

sleppingar, fylgjast með ástandi gróðurs og vega og láta vita sín á milli hvenær þeir

hyggist fara með fé sitt, hvort heldur sem er til rekstrar eða keyrslu, svo ekki fari of

margir á sama tíma.

Þá leggur nefndin til að leyfilegt verði að sleppa hrossum á afrétt frá og með 1. júlí og verða þau að vera komin af afrétt í síðasta lagi 31. ágúst.

Sveitarstjórn samþykkir tillögu nefndarinnar. (Áður samþykkt með tölvupóstum).

Nefndin leggur til breytingar á erindisbréfi nefndarinnar. Sveitarstjórn tekur undir athugasemdir nefndarinnar og vísar til vinnslu erindisbréfa.

  1. Fundargerð ungmennaráðs, dags. 10. júní 2026.

Fundargerð lögð fram.

Með fundargerðinni fylgdi ályktun varðandi ósk ráðsins um fund með sveitarstjórn, ruslatunnur og fl. Sveitarstjórn tekur vel í erindi ráðsins og felur sveitarstjóra að svara því.

  1. Skipulagsmál.

a. Endurskoðun aðalskipulags.

Skipulags- og matslýsing vegna endurskoðunar aðalskipulags Grýtubakkahrepps var kynnt skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og var kynningartímabilið frá 10. apríl til 8. maí sl. 12 umsagnir bárust og eru þær nú til umfjöllunar hjá sveitarstjórn.

Sveitarstjórn samþykkir að skipulagshönnuði sé falið að hafa hliðsjón af innkomnum umsögnum við mótun vinnslutillögu aðalskipulagsins sem verði síðan lögð fyrir sveitarstjórn að nýju.

b. Lækjarvellir 5 – 7, deiliskipulag, breyting.

Tekin fyrir að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulagi íbúðarbyggðar norðan Miðgarða á Grenivík vegna Lækjarvalla 5-7 og leikskólans Krummafótar en breytingin felur í sér sameiningu lóða og rýmkun byggingarreits vegna fyrirhugaðrar viðbyggingar við leikskólann. Tillagan var grenndarkynnt frá 12. maí til 1. júní sl.

Sveitarstjórn samþykkir deiliskipulagsbreytinguna skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, enda hafa allir hagsmunaaðilar lýst því skriflega yfir að þeir geri ekki athugasemd við breytinguna.

  1. Laun í vinnuskóla sumarið 2026.

Laun með orlofi sumarið 2026 verða þannig:

Dagvinna Yfirvinna

14 ára á árinu kr. 1.570,49     kr. 2.651,96

15 ára á árinu kr. 1.826,15     kr. 3.083,67

16 ára á árinu kr. 2.374,-        kr. 4.008,77

Sveitarstjórn staðfestir launatöfluna.

  1. Skipun í nefndir og stjórnir á vegum Grýtubakkahrepps 2026 - 2030.

Kjörstjórn Grýtubakkahrepps.

Aðalmenn skipaðir: Jón Helgi Pétursson, Viðar Júlíusson og Elín K. Sigurðardóttir.

Varamenn skipaðir: Guðmundur Sæmundsson og Anna Bára Bergvinsdóttir.

Fjallskilastjóri.

Fjallskilastjóri skipaður Þórarinn Ingi Pétursson.

Félagsmála- og jafnréttisnefnd.

Aðalmenn skipaðir: Gísli Gunnar Oddgeirsson, Sigrún Björnsdóttir og Inga María Sigurbjörnsdóttir.

Varamenn skipaðir: Svala Fanney Snædahl Njálsdóttir og Hildur Björk Benediktsdóttir.

Stjórn Útgerðarminjasafnsins á Grenivík.

Aðalmenn skipaðir: Birgir Már Birgisson, Oddný Jóhannsdóttir og Þorsteinn Eyfjörð Friðriksson.

Varamenn skipaðir: Hafdís Harðardóttir, Ásta Ísaksdóttir og Fjóla V. Stefánsdóttir.

Fulltrúi í stjórn Hafnasamlags Norðurlands.

Gísli Gunnar Oddgeirsson skipaður fulltrúi í stjórn Hafnasamlags Norðurlands og Þröstur Friðfinnsson til vara.

Öðrum skipunum frestað til næsta fundar.

  1. Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst 2026.

Þjóðaratkvæðagreiðsla vegna upptöku aðildarviðræðna við Evrópusambandið á ný fer fram þann 29. ágúst nk.

Sveitarstjórn óskar eftir því við sýslumann að utankjörfundaratkvæðagreiðsla verði haldin á skrifstofu hreppsins og að sýslumaður skipi kjörstjóra í því skyni. Jafnframt er óskað eftir möguleika á hreyfanlegum kjörstað, þannig að mögulegt verði að greiða atkvæði utan kjörfundar á hjúkrunarheimilinu Grenilundi ef þörf verður á.

Óskir þessar eru settar fram til sýslumanns í samræmi við kosningalög nr. 112/2021, með vísan í grein nr. 69.

  1. Frá Flugklasanum Air 66N, skýrsla um starfið, apríl 2026.

Skýrslan lögð fram.

  1. Frá SSNE, niðurstöðuskýrsla ungmennaþings 2026.

Skýrslan lögð fram.

  1. Frá Innviðaráðuneyti, endurskoðun byggðakvótakerfis, dags. 8. maí 2026.

Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps styður óbreytt fyrirkomulag varðandi byggðakvóta. Nefna má að á Grenivík starfa á milli 40 og 50 manns við fiskvinnslu.

 

Fleira ekki tekið fyrir, fundargerð lesin upp og samþykkt. Fundi slitið kl. 20:41.

Fundargerð ritaði Þröstur Friðfinnsson.