Sveitarstjórnarfundur nr. 543

01.06.2026 00:00

Sveitarstjórnarfundur nr. 543

Mánudaginn 1. júní 2026, kom ný sveitarstjórn Grýtubakkahrepps saman til fyrsta fundar á skrifstofu hreppsins að Túngötu 3 á Grenivík. Eftirtaldir sveitarstjórnarfulltrúar voru mættir; Gísli Gunnar Oddgeirsson, Þorgeir Rúnar Finnsson, Inga María Sigurbjörnsdóttir, Árni Páll Jóhannsson og Ingólfur Kr. Ásgeirsson. Einnig sat sveitarstjóri fundinn.

Fundurinn hófst kl. 16:15.

Gjörðir fundarins voru þessar:

  1. Kosning oddvita og varaoddvita.

Gísli Gunnar Oddgeirsson starfsaldursforseti sveitarstjórnar setti fund og stýrði kjöri oddvita og varaoddvita fyrir kjörtímabilið 2026 til 2030.

Oddviti var kjörinn Gísli Gunnar Oddgeirsson.

Varaoddviti var kjörinn Þorgeir Rúnar Finnsson.

  1. 2. Skýrsla kjörstjórnar skv. 119. gr. kosningalaga nr. 112/2021, vegna sveitarstjórnarkosninga dags., 16. maí 2026.

Skýrsla lögð fram.

  1. Ráðning sveitarstjóra.

Oddviti og sveitarstjóri skrifuðu undir ráðningarsamning til loka kjörtímabils. Sveitarstjórn staðfestir framlagðan ráðningarsamning við Þröst Friðfinnsson.

  1. Fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga, dags. 8. maí 2026.

Fundargerð lögð fram.

  1. Fundargerð Farsældarráðs Norðurl. eystra, dags. 13. maí 2026.

Fundargerð lögð fram.

  1. Þinggerð ársþings SSNE 2026, dags. 26. mars 2026.

Þinggerð lögð fram.

  1. Fundargerð stjórnar SSNE, dags. 7. maí 2026.

Fundargerð lögð fram.

  1. Fundargerð 113. afgreiðslufundar SBE, dags. 20. maí 2026.

Fundargerð lögð fram.

  1. Fundargerð stjórnar Flokkunar Eyjafjarðar ehf., dags. 26. maí 2026.

Fundargerð lögð fram.

  1. Frá Sambandi ísl. sveitarfélaga, kosning þingfulltrúa á landsþing, dags. 11. maí 2026.

Gísli Gunnar Oddgeirsson verður fulltrúi sveitarfélagins á landsþinginu og Þorgeir Rúnar Finnson varafulltrúi.

  1. Frá SSNE, v. skipunar stjórnarmanns, varamanns og þingfulltrúa og varaþingfulltrúa á þing SSNE, dags. 17. maí 2026.

Sveitarstjórn tilnefnir Gísla Gunnar Oddgeirsson sem aðalmann í stjórn SSNE og Ingu Maríu Sigurbjörnsdóttur sem varamann. Þorgeir Rúnar Finnsson og Inga María Sigurbjörnsdóttir verða þingfulltrúar á þingi SSNE og Ingólfur Kr. Ásgeirsson og Árni Páll Jóhannsson varaþingfulltrúar.

  1. Frá SSNE, samningur við Bergið, dags. 12. maí 2026.

Sveitarstjórn staðfestir samninginn fyrir sitt leyti.

  1. Frá Tengi hf, umsókn um framkvæmdaleyfi, dags. 27. maí 2026.

Tengir hf. sækir um framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara frá Grenivík að Borgargerði skv. meðfylgjandi erindi og teikningu dags. 27.05.2026 en verkefnið snýst m.a. um að auka öryggi fjarskipta í sveitarfélaginu með tvöföldun tengingar.

Sveitarstjórn samþykkir að framkvæmdaleyfi verði veitt fyrir framkvæmdinni í samræmi við umsókn og framlagðar teikningar. Skipulagsfulltrúa er falið að fylgja málinu eftir og fullnusta útgáfu framkvæmdaleyfis skv. 11. gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi.

  1. Erindi frá Hestamannafélaginu Þráni, v. æskulýðsstarfs, dags. 24. maí 2026.

Sveitarstjórn tekur vel í erindið og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

  1. Boð á aðalfund Vottunarstofunnar Túns, haldinn 4. júní 2026.

Erindi lagt fram.

  1. Boð á hluthafafund Greiðrar leiðar ehf., haldinn 9. júní 2026.

Þröstur Friðfinnsson fer með umboð sveitarfélagsins á fundinum.

  1. Boð á aðalfund Greiðrar leiðar ehf., haldinn 9. júní 2026.

Þröstur Friðfinnsson fer með umboð sveitarfélagsins á fundinum.

  1. Boð á málstofu Náttúruverndarsamtaka Íslands, haldin í Hofi 5. júní 2026.

Erindi lagt fram.

  1. Rekstur sveitarfélagsins, staða og horfur.

Sveitarstjóri fór yfir stöðu og horfur í rekstri sveitarfélagsins.

 

Fleira ekki tekið fyrir, fundargerð lesin upp og samþykkt. Fundi slitið kl. 21:30.

Fundargerð ritaði Þorgeir Rúnar Finnsson.