Sveitarstjórnarfundur nr. 541

11.05.2026 00:00

Sveitarstjórnarfundur nr. 541

Mánudaginn 11. maí 2026, kom sveitarstjórn Grýtubakkahrepps saman til fundar á skrifstofu hreppsins að Túngötu 3 á Grenivík. Eftirtaldir sveitarstjórnarfulltrúar voru mættir; Gísli Gunnar Oddgeirsson, Þorgeir Rúnar Finnsson, Fjóla V. Stefánsdóttir, Gunnar B. Pálsson og Inga María Sigurbjörnsdóttir. Einnig sat sveitarstjóri fundinn.

Fundurinn hófst kl. 16:00.

Gjörðir fundarins voru þessar:

  1. Stígagerð í Grýtubakkahreppi.

Sigurbjörn Þór Jakobsson mætti á fund sveitarstjórnar fyrir hönd Stígs – félags um stígagerð í Grýtubakkahreppi og kynnti hugmyndir félagsins um stígagerð í hreppnum. Sveitarstjórn þakkar fyrir góða kynningu og tekur sérlega vel í hugmyndir félagsins.

  1. Fundargerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, dags. 23. jan., 20, feb., 3. mars og 8. apríl 2026.

Fundargerðir lagðar fram.

  1. Fundargerð aðalfundar Norðurorku, dags. 20. apríl 2026.

Fundargerð lögð fram.

  1. Fundargerð stjórnar Norðurorku, dags. 5. maí 2026.

Fundargerð lögð fram.

  1. Fundargerð almannavarnanefndar Norðurlands eystra, dags. 5. maí 2026.

Fundargerð lögð fram.

  1. Fundargerð aðalfundar Hafnasamalags Norðurlands, dags. 6. maí 2026.

Fundargerð lögð fram.

  1. Fundargerð 112. afgreiðslufundar SBE, dags. 6. maí 2026.

Fundargerð lögð fram.

Í lið 1 sækir Sigþór Guðnason um breytingar á áður samþykktum teikningum á lóðinni Höfðagötu 5. Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Í lið 2 sækir Heimir Ásgeirsson um byggingaráform og byggingarleyfi/heimild fyrir einbýlishús á lóðinni Ægissíða 10. Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin.

  1. Skipulagsmál.

a.  Lækjarvellir 5 – 7, deiliskipulagstillaga.

Fyrir fundinum liggur tillaga að breytingu á deiliskipulagi íbúðarbyggðar norðan Miðgarða á Grenivík vegna Lækjarvalla 5-7 og leikskólans Krummafótar. Breytingin felur í sér sameiningu lóða og rýmkun byggingarreits vegna fyrirhugaðrar viðbyggingar við leikskólann. Ekki er gert ráð fyrir breytingum á öðrum skilmálum deiliskipulagsins.

Sveitarstjórn samþykkir að gerð verði breyting á deiliskipulagi til samræmis við erindið. Er breytingin óveruleg skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal hún grenndarkynnt skv. 44. gr. laganna.

 

b.  Sæland 4, breytt notkun húsnæðis, gistiþjónusta.

Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið og gerir ekki athugasemd við útgáfu rekstrarleyfis fyrir gististarfsemi að Sælandi 4. Jafnframt er bent á að sækja þarf um rekstrarleyfi til sýslumanns.

  1. Boð á ársfund Náttúruhamfaratryggingar Íslands, haldinn 21. maí 2026.

Erindi lagt fram.

 

Fleira ekki tekið fyrir, fundargerð lesin upp og samþykkt. Fundi slitið kl. 19:21.

Fundargerð ritaði Þorgeir Rúnar Finnsson.