- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Sveitarstjórnarfundur nr. 540
Mánudaginn 27. apríl 2026, kom sveitarstjórn Grýtubakkahrepps saman til fundar á skrifstofu hreppsins að Túngötu 3 á Grenivík. Eftirtaldir sveitarstjórnarfulltrúar voru mættir; Gísli Gunnar Oddgeirsson, Þorgeir Rúnar Finnsson, Fjóla V. Stefánsdóttir, Gunnar B. Pálsson og Inga María Sigurbjörnsdóttir. Einnig sat sveitarstjóri fundinn.
Fundurinn hófst kl. 16:00.
Gjörðir fundarins voru þessar:
Níels Guðmundsson, endurskoðandi hjá Enor, mætti á fundinn og fór yfir ársreikning og endurskoðunarskýrslu.
Lagður fram ársreikningur 2025, ásamt endurskoðunarskýrslu, skuldbindingayfirliti og staðfestingarbréfi stjórnenda.
Helstu niðurstöður eru í þús.kr.:
Sveitarsjóður A hluti A og B hluti saman
Rekstrartekjur alls 696.472 966.001
Rekstrargjöld alls 733.069 973.639
Fjárm.tekjur og (fjármagnsgjöld) (5.378) (13.764)
Rekstrarniðurstaða (41.975) (21.402)
Eigið fé í árslok 457.078 (51,3%)
Ársreikningur samþykktur og undirritaður, skuldbindingayfirlit einnig undirritað.
Fundargerð lögð fram.
Fundargerð lögð fram.
Fundargerðir lagðar fram.
Fundargerð lögð fram.
Fundargerð lögð fram.
Fundargerð lögð fram.
Fundargerðir lagðar fram.
Í lið 1 á 110. fundi sækir Gjögur hf. um breytingar á áður samþykktum teikningum af raðhúsi á lóðinni Lækjarvellir 17-19. Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin.
Í lið 1 á 111. fundi sækir Heimir Ásgeirsson um byggingaráform og byggingarleyfi/heimild fyrir einbýlishús á lóðinni Ægissíða 10. Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar erindinu með vísan í athugasemdalista.
Í lið 2 á 111. fundi sækir Sigurður Jónas Baldursson um byggingaráform og byggingarleyfi/heimild fyrir viðbyggingu við geymsluhúsnæði á lóðinni Grýta. Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin.
Sigurður Baldur Þorsteinsson verður fulltrúi sveitarfélagsins í þessari vinnu.
Erindi lagt fram.
Erindi lagt fram.
Erindi lagt fram. Sveitarstjóra falið að senda inn umsögn um málið í samræmi við umræður á fundinum.
Erindi lagt fram.
Inga María Sigurbjörnsdóttir fer með umboð sveitarfélagsins á fundinum.
Fjóla V. Stefánsdóttir fer með umboð sveitarfélagsins á fundinum.
Áfram er unnið að undirbúningi stækkunar á leikskólanum Krummafæti og stefnt er að því að hefja framkvæmdir í júlí næstkomandi.
Rætt um undirbúning kynningarfundar vegna endurskoðunar aðalskipulags Grýtubakkahrepps sem haldinn verður 29. apríl næstkomandi í matsal Grenivíkurskóla kl. 17:00.
Fleira ekki tekið fyrir, fundargerð lesin upp og samþykkt. Fundi slitið kl. 20:11.
Fundargerð ritaði Þorgeir Rúnar Finnsson.