- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Sveitarstjórnarfundur nr. 539
Þriðjudaginn 7. apríl 2026, kom sveitarstjórn Grýtubakkahrepps saman til fundar á skrifstofu hreppsins að Túngötu 3 á Grenivík. Eftirtaldir sveitarstjórnarfulltrúar voru mættir; Gísli Gunnar Oddgeirsson, Þorgeir Rúnar Finnsson, Fjóla V. Stefánsdóttir, Gunnar B. Pálsson og Inga María Sigurbjörnsdóttir. Einnig sat sveitarstjóri fundinn.
Fundurinn hófst kl. 16:00.
Gjörðir fundarins voru þessar:
Fundargerð lögð fram.
Fundargerð lögð fram.
Fundargerð lögð fram.
Lögð fram merkjalýsing unnin af Sigurgeiri Skúlasyni dags. 13.08.2025 þar sem verið er að afmarka 1500 fermetra skika undir íbúðarhús í landi Laufáss.
Sveitarstjórn staðfestir framlagða merkjalýsingu á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024. Bent er á að kvöð um umferðarrétt að skikanum er um land Laufáss frá þjóðvegi nr. 83.
Erindi lagt fram.
Erindi lagt fram.
Erindi lagt fram.
Þröstur Friðfinnsson sækir fundinn fyrir hönd Grýtubakkahrepps og fer með umboð sveitarfélagsins á fundinum.
Gísli Gunnar Oddgeirsson sækir fundinn fyrir hönd Grýtubakkahrepps og fer með umboð sveitarfélagsins á fundinum.
Þorgeir Rúnar Finnsson sækir fundinn fyrir hönd Grýtubakkahrepps og fer með umboð sveitarfélagsins á fundinum.
Sveitarstjórn sendi inn umsögn um málið og fékk - í samstarfi við 11 önnur sveitarfélög - Guðjón Bragason, lögfræðing, til að skrifa greinargerð um það. Umsögn Grýtubakkahrepps og greinargerðina má skoða hér: https://www.althingi.is/altext/erindi/157/157-2089.pdf
Fyrri umræðu lokið og ársreikningi vísað til síðari umræðu.
Oddviti leitar afbrigða til að taka dagskrárlið nr. 13 á dagskrá.
Afbrigði samþykkt.
Kjörskrá verður birt á næstu dögum. Sveitarstjórn felur oddvita og sveitarstjóra að yfirfara kjörskrá, staðfesta hana og leggja fram. Kjörskrá liggur svo frammi á skrifstofu hreppsins fram að kjördegi.
Fleira ekki tekið fyrir, fundargerð lesin upp og samþykkt. Fundi slitið kl. 18:29.
Fundargerð ritaði Þorgeir Rúnar Finnsson.