Sveitarstjórnarfundur nr. 538

23.03.2026 00:00

Sveitarstjórnarfundur nr. 538

Mánudaginn 23. mars 2026, kom sveitarstjórn Grýtubakkahrepps saman til fundar á skrifstofu hreppsins að Túngötu 3 á Grenivík. Eftirtaldir sveitarstjórnarfulltrúar voru mættir; Gísli Gunnar Oddgeirsson, Þorgeir Rúnar Finnsson, Fjóla V. Stefánsdóttir, Gunnar B. Pálsson og Inga María Sigurbjörnsdóttir. Einnig sat sveitarstjóri fundinn.

Fundurinn hófst kl. 16:00.

Gjörðir fundarins voru þessar:

  1. Fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga, dags. 10. mars 2026.

Fundargerð lögð fram.

  1. Fundargerðir farsældarráðs Norðurlands eystra, dags. 14. jan., 11. feb. og 11. mars 2026.

Fundargerðir lagðar fram.

  1. Fundargerð heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra, dags. 4. mars 2026.

Fundargerð lögð fram.

  1. Fundargerð stjórnar SSNE, dags. 5. mars 2026.

Fundargerð lögð fram.

  1. Fundargerð 108. afgreiðslufundar SBE, dags. 17. mars 2026.

Fundargerð lögð fram.

  1. Fundargerð fræðslu- og æskulýðsnefndar, dags. 11. mars 2026.

Fundargerð lögð fram. Á fundinum voru kynnt áform um viðbyggingu við leikskólann Krummafót. Nefndinni leist vel á áformin. Unnið er að lokaskipulagningu verkefnisins og er áætlað að framkvæmdir hefjist í sumar.

  1. Fundargerð félagsmála- og jafnréttisnefndar, dags. 16. mars 2026.

Fundargerð lögð fram.

  1. Skipulagsmál.

a. Endurskoðun aðalskipulags, skipulagslýsing.

Fyrir fundinum liggur skipulags- og matslýsing vegna endurskoðunar Aðalskipulags Grýtubakkahrepps 2026, unnið af Teikna.

Sveitarstjórn samþykkir framlagða skipulags- og matslýsingu vegna endurskoðunar Aðalskipulags Grýtubakkahrepps 2026 og vísar henni í kynningarferli skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

b. Erindi frá Sigurbirni Höskuldssyni, skipulag lóðarmarka í Réttarholti.

Erindi lagt fram vegna merkjalýsingar dags. 06.02.2026 um afmörkun og stækkun lóðarinnar Réttarholts II (L153079) ásamt afmörkun nýrrar lóðar úr landi Réttarholts (L153079).

Sveitarstjórn staðfestir framlagða merkjalýsingu.

  1. Húsnæðisáætlun Grýtubakkahrepps 2026.

Farið yfir húsnæðisáætlun Grýtubakkahrepps 2026. Sveitarstjórn staðfestir framlagða áætlun með þeim leiðréttingum sem gerðar voru á fundinum.

  1. Skýrsla vinnuhóps um málefni fatlaðs fólks, velferðarsvið Akureyrar.

Erindi lagt fram.

  1. Sveitarstjórnarkosningar 2026.

Sveitarstjórnarkosningar fara fram 16. maí 2026.

Sveitarstjórn óskar eftir því við sýslumann að utankjörfundaratkvæðagreiðsla verði haldin á skrifstofu hreppsins og að sýslumaður skipi kjörstjóra í því skyni. Jafnframt er óskað eftir möguleika á hreyfanlegum kjörstað, þannig að mögulegt verði að greiða atkvæði utan kjörfundar á hjúkrunarheimilinu Grenilundi ef þörf verður á.

Óskir þessar eru settar fram til sýslumanns í samræmi við kosningalög nr. 112/2021, með vísan í grein nr. 69.

  1. Frá nefndasviði Alþingis, frumvarp að nýjum sveitarstjórnarlögum.

Sveitarstjóra falið að vinna að umsögn um málið í takt við umræður á fundinum, mögulega í samstarfi við önnur sveitarfélög.

 

Fleira ekki tekið fyrir, fundargerð lesin upp og samþykkt. Fundi slitið kl. 19:17.

Fundargerð ritaði Þorgeir Rúnar Finnsson