- Þjónusta
- Mannlífið
- Stjórnsýsla
Sveitarstjórnarfundur nr. 537
Mánudaginn 9. mars 2026, kom sveitarstjórn Grýtubakkahrepps saman til fundar á skrifstofu hreppsins að Túngötu 3 á Grenivík. Eftirtaldir sveitarstjórnarfulltrúar voru mættir; Gísli Gunnar Oddgeirsson, Þorgeir Rúnar Finnsson, Fjóla V. Stefánsdóttir, Gunnar B. Pálsson og Inga María Sigurbjörnsdóttir. Einnig sat sveitarstjóri fundinn.
Fundurinn hófst kl. 16:00.
Gjörðir fundarins voru þessar:
Stefán Hrafn Stefánsson, umsjónarmaður fasteigna í Grýtubakkahreppi, mætti á fundinn og fór yfir áform um viðbyggingu við leikskólann Krummafót og sýndi teikningar sem unnar hafa verið. Sveitarstjórn þakkar Stefáni fyrir góða kynningu. Erindi vísað til fræðslu- og æskulýðsnefndar til umjöllunar.
Fundargerðir lagðar fram.
Fundargerð lögð fram.
Unnið að undirbúningi skipulagslýsingar fyrir endurskoðað aðalskipulag Grýtubakkahrepps.
Erindi lagt fram. Þorgeir Rúnar Finnsson fer með umboð sveitarfélagsins á fundinum.
Erindi lagt fram. Gísli Gunnar Oddgeirsson og Inga María Sigurbjörnsdóttir sækja þingið fyrir hönd sveitarfélagsins.
Erindi lagt fram.
Erindi lagt fram.
Erindi lagt fram.
Erindi lagt fram. Sveitarstjórn býður fram Gísla Gunnar Oddgeirsson sem aðal- eða varamann í ráðið.
Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps fagnar því að fá drögin til umsagnar.
Sveitarstjórn telur að í 2. grein mætti skýra betur hlutverk Norðurorku sem innviðafyrirtækis sem starfar í þágu íbúa sveitarfélaganna.
Sveitarstjórn er sátt við faglega nálgun varðandi stjórn og hlutverk stjórnar, en telur 21. grein mögulega ganga gegn því sjálfstæði stjórnar og armslengd frá pólitískri stjórnun sem annars er verið að leitast eftir með breytingum samþykktanna.
Að öðru leyti gerir sveitarstjórn ekki athugasemdir við drögin sjálf, en leggur hins vegar áherslu á að minni hluthafar verði áfram með áheyrnarfulltrúa í stjórn svo sem verið hefur. Jafnframt að áheyrnarfulltrúi fái laun fyrir sína fundarsetu sem ekki hefur verið til þessa.
Loks telur sveitarstjórn eðlilegt og fer fram á að minni hluthafar fái beina aðkomu að ferli við val óháðra stjórnarmanna og varamanna þeirra.
Erindi lagt fram.
Fleira ekki tekið fyrir, fundargerð lesin upp og samþykkt. Fundi slitið kl. 19:38.
Fundargerð ritaði Þorgeir Rúnar Finnsson.