Sveitarstjórnarfundur nr. 535

09.02.2026 00:00

Sveitarstjórnarfundur nr. 535

Mánudaginn 9. febrúar 2026, kom sveitarstjórn Grýtubakkahrepps saman til fundar á skrifstofu hreppsins að Túngötu 3 á Grenivík. Eftirtaldir sveitarstjórnarfulltrúar voru mættir; Gísli Gunnar Oddgeirsson, Þorgeir Rúnar Finnsson, Fjóla V. Stefánsdóttir, Gunnar B. Pálsson og Inga María Sigurbjörnsdóttir. Einnig sat sveitarstjóri fundinn.

Fundurinn hófst kl. 16:00.

Gjörðir fundarins voru þessar:

  1. Fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga, dags. 23. jan. 2026.

Fundargerð lögð fram.

  1. Fundargerð stjórnar SSNE, dags. 5. feb. 2026.

Fundargerð lögð fram.

  1. Fundargerðir stjórnar Norðurorku, dags. 9. des. 2025 og 3. feb. 2026.

Fundargerðir lagðar fram.

  1. Fundargerð 105. afgreiðslufundar SBE, dags. 30. jan. 2026.

Fundargerð lögð fram.

  1. Frá Sambandi ísl. sveitarfélaga, landsþing 2026, haldið 23.-25. sept 2026.

Erindi lagt fram.

  1. Frá Sambandi ísl. sveitarfélaga, átakið; Hafðu áhrif – taktu þátt, dags. 5. feb. 2026.

Erindi lagt fram.

  1. Mál í samráðsgátt, breytingar á framkvæmd heilbrigðiseftirlits.

Erindi lagt fram. Sveitarstjóra falið að skila inn umsögn um málið í takt við umræður á fundinum.

  1. Frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, stofnframlög til íbúðarbygginga 2026, dags. 30. jan. 2026.

Erindi lagt fram.

  1. Frá Atlantsflugi, þingsályktunartillaga um staðsetningu þyrlu, dags. 2. feb. 2026.

Erindi lagt fram.

  1. Frá Eignarhaldsfélagi BÍ, styrktarsjóður, dags. 27. jan. 2026.

Erindi lagt fram.

 

Fleira ekki tekið fyrir, fundargerð lesin upp og samþykkt. Fundi slitið kl. 17:45.

Fundargerð ritaði Þorgeir Rúnar Finnsson.